Viðskipti innlent

Rífandi gangur í fasteignaviðskiptum

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 124. Þetta er umtalsvert meiri fjöldi samninga en nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði sem er 104 samningar.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að af þessum 124 samningum var 101 samningur um eignir í fjölbýli, 17 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var tæpir 3,4 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 27,2 milljónir króna. Heildarveltan hefur verið tæplega 3 milljarðar króna að meðaltali á viku undanfarna þrjá mánuði og meðalupphæð á saming 28,6 milljónir kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×