Mismunurinn dygði fyrir Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum Kristján Már Unnarsson skrifar 16. maí 2012 19:15
Landsvirkjun segir ríkisstjórnina hafa sniðgengið arðsemi og hagkvæmni við gerð rammaáætlunar. Sparnaður sem næðist með því að leyfa hagkvæmustu virkjunina dygði fyrir bæði Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum. Við sögðum í gær frá andmælum Landsvirkjunar gegn því að Norðlingaölduveita fari í verndarflokk en fyrirtækið segir í greinargerð að hagkvæmni og arðsemi séu sniðgengin við flokkun virkjunarkosta og það sé í andstöðu við markmið laganna. Einungis séu leyfðir tveir litlir og óhagkvæmir vatnsaflskostir en enginn af þeim hagkvæmustu. Þeir fimm sem Landsvirkjun telur arðbærasta eru allir á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu;Tungnaárveita, Norðlingaölduveita, Urriðafossvirkjun, Bjallavirkjun og Hvammsvirkjun, og eru ýmist settar í verndar- eða biðflokk. Norðlingaölduveita var fyrir níu árum næst í röðinni hjá Landsvirkjun en var þá vegna deilna sett á bið og Búðarhálsvirkjun tekin fram fyrir. Samanburður þessara tveggja kosta sýnir vel þá fjárhagslegu hagsmuni sem um er að tefla en Búðarhálsvirkjun, sem nú er smíðum, upp á 585 gígavattstundir, kostar 26 milljarða króna. Norðlingaölduveita skilar álíka mikilli orku, 605 gígavattsstundum, en kostar mun minna, eða 17,3 milljarða króna, samkvæmt tölum Landsvirkjunar. Mismunurinn, 8,7 milljarðar, dugar nánast fyrir Norðfjarðargöngum, sem áætla má að kosti um níu milljarða. Samanburður við Hvammsvirkjun, þá stóru vatnsaflsvirkjun sem líklegast má telja út frá umræðu um rammaáætlun að stjórnarflokkarnir geti fallist á næst, sýnir enn meiri mun. Þessi tveir kostir skila álíka mikilli orku. Hvammsvirkjun kostar hins vegar um 33 milljarða króna, en Norðlingaölduveita um 17 milljarða, næstum helmingi minna. Mismunurinn, tæpir sextán milljarðar, er álíka fjárhæð og ætla má að bæði Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöng kosti.
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira