Vodafone á markað í september eða október Þórður Snær Júlíusson skrifar 9. maí 2012 07:30
Annað stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins fer á markað í haust. Leit að ráðgjafa stendur yfir. Vel kemur til greina að selja hlut til kjölfestufjárfestis. Stjórnarformaður segir markaðsaðstæður vera góðar og að félagið sé rekstrarlega stöðugt. Stjórn Vodafone hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins á markað. Markmið hennar er að skráningin muni eiga sér stað í september eða október á þessu ári. Þetta staðfestir Þór Hauksson, stjórnarformaður Vodafone, í samtali við Markaðinn. Félagið er næst stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins á eftir Símanum. Auk þess rekur það fjarskiptafyrirtæki í Færeyjum. Óskað verður eftir því að hlutir í Vodafone verði teknir til viðskipta í Kauphöll Íslands í haust að undangengnu útboði. Því verður beint að fagfjárfestum og almennum fjárfestum. Stefnt er að því að tryggja dreifða eignaraðild að félaginu. Þór segir ákvörðunina hafa verið tekna á síðasta stjórnarfundi Vodafone, sem haldinn var í apríl. „Við teljum tímapunktinn réttan fyrir félagið að fara í skráningu. Það er stöðugt rekstrarlega séð. Það eru þrjú ár síðan það fór í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Við teljum það því vera skráningarhæft félag og rétt að fjölga hluthöfum þess. Við metum það líka, eins og staðan er í dag, að markaðsaðstæður verði góðar í haust." Að sögn Þórs hefur stjórnin fundið fyrir áhuga á meðal fjárfesta á að koma inn í hlutahafahóp Vodafone. Sá áhugi er að mestu hjá fagfjárfestum. Nú stendur yfir leit að ráðgjafa til að sjá um ferlið og stjórn Vodafone sendi bréf til tíu aðila sem hún telur að hafi getu til þess síðastliðinn mánudag. Þór segir að vel komi til greina að selja fyrst hlut til kjölfestufjárfesta. „Við sjáum fyrir okkur að gera þetta tvíhliða. Vel kemur til greina að leita fyrst að kjölfestufjárfestum á meðal fagfjárfesta og síðan að fara í opið útboð." Vodafone er sem stendur í ráðandi eigu Framtakssjóðs Íslands (FSÍ), sem á 79,5 prósent eignarhlut. Félagið verður það fyrsta sem FSÍ mun nýskrá á markað síðan að sjóðurinn var stofnaður í desember 2009. Alls voru eigendur Vodafone samtals 45 talsins um síðustu áramót. Þorri viðbótarhlutafjár í félaginu er í eigu lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja. Teymi, fyrrum móðurfélag Vodafone, gerði nauðasamning við kröfuhafa sína í apríl 2009. Í kjölfarið var hluti vaxtaberandi skulda Vodafone færður yfir til Teymis og öðrum vaxtaberandi skuldum að frádregnum kröfum á hendur Teymi umbreytt í nýtt hlutafé. Við þessa aðgerð lækkuðu skuldir Vodafone um tæpa átta milljarða króna á árinu 2009. Í kjölfarið eignaðist Landsbankinn ráðandi hlut í félaginu og renndi því inn í þá nýstofnað eignaumsýslufélag sitt Vestia. Í águst 2010 var síðan tilkynnt um að Landsbankinn hefði selt Vestia til FSÍ gegn því að bankinn eignaðist 27,6 prósent í sjóðnum. Hann er nú stærsti einstaki eigandi FSÍ. Síðan þá hefur rekstur Vodafone gengið ágætlega. Velta Vodafone á árinu 2011 var 12,7 milljarðar króna, sem var mjög svipað og félaginu velti árið á undan. Framlegð þess var um fimm milljarðar króna hagnaður 227 milljónir króna á síðasta ári. Það var nokkuð minna en árið 2010 þegar Vodafone hagnaðist um 355 milljónir króna.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent