Sem betur fer vöknuðu menn í hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2012 23:45 Mynd/Pjetur
Íslenska karlalandsliðið komst yfir brösuga byrjun og slakan fyrri hálfleik og náði að tryggja sér 31-31 jafntefli á móti Pólverjum í fyrsta undirbúningsleiknum sínum fyrir EM í Serbíu. Þetta var fyrsti leikur landsliðsins á fjögurra þjóða æfingamóti, Total Kredit Cup, sem fram fer í Danmörku um helgina. Pólverjar voru 17-11 yfir í hálfleik og með 29-26 forystu þegar fimm mínútur voru eftir. Íslenska liðið vann lokakaflann 5-2 og línumaðurinn Kári Kristjánsson skoraði jöfnunarmarkið af miklu harðfylgni. Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum í leiknum og skoraði 13 mörk. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk og þeir Kári og Alexander Petersson voru með fjögur mörk hvor. „Þetta var mjög kaflaskipt. Þetta var slakur fyrri hálfleikur hjá okkur eiginlega á öllum sviðum en mjög góður síðari hálfleikur og það má jafnvel segja að hann hafi verið frábær," sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari. „Þetta byrjaði illa en strákarnir komu aldeilis með réttu svörin í hálfleik og leystu þetta mjög vel bæði varnar- og sóknarlega. Það var jákvætt að enda þetta á þennan hátt." „Þetta var ekki okkur samboðið í fyrri hálfleik. Við gerðum alltof mikið af tæknimistökum og afhentum þeim boltann ítrekað. Ég hef sjaldan upplifað annað eins því menn voru bara á hælunum. Sem betur fer vöknuðu menn í hálfleik og komu mjög grimmir til leiks í síðari hálfleik. Það var allt annað að sjá til liðsins og þannig þarf það að vera. Það tekur tíma að spila liðið í gang og það er ágætt að fá æfingaleikina til þess. Þegar upp var staðið þá var þetta mjög jákvætt hjá okkur," sagði Guðmundur.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira