Alltaf náðað vegna alvarlegra veikinda 14. maí 2012 04:00 Aðeins einn af 167 hefur rofið skilorð náðunar og verið settur aftur í fangelsi. Fréttablaðið/Vilhelm
Umsóknir fanga um náðanir hafa allar verið samþykktar á grundvelli heilsufarsástæðna. Síðan 1980 hafa alls verið náðaðir 167 einstaklingar hér á landi, þar af 45 á síðustu 16 árum. Skúli Þór Gunnsteinsson, lögfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu, segir allar náðanir byggðar á læknisfræðilegum rökum. „Menn geta verið að kljást við alvarleg geðræn vandamál eða eru algjörlega bundnir á stofnunum. Einnig er mjög algengt að menn eigi einfaldlega ekki langt eftir og séu við dauðans dyr,“ segir Skúli. „Svo eru einstaklingar sem eru algjörlega ósjálfbjarga og það er ekki hægt að vera með slíka menn í fangelsi. Það þjónar engum tilgangi.“ Dómarnir sem náðaðir einstaklingar hafa hlotið eru í langflestum tilvikum vægir. Skúli segir mikið þurfa að koma til ef um sé að ræða þunga dóma og slíkt heyri til algjörra undantekninga. „Það er til, en það er mjög óalgengt,“ segir hann. Í flestum tilvikum séu menn að afplána dóma fyrir fésektir. Hljóti maður náðun þarf að halda almennt skilorð. Skúli man eftir einu tilviki þar sem náðaður maður braut skilorð, en þar var um að ræða mjög andlega veikan einstakling. „Hann var bara settur aftur í steininn.“ Sama gildir um skilorðsrof hjá náðuðum einstaklingum og þeim sem hafa fengið skilorðsbundna dóma. Í því samhengi bendir Skúli á að gæti viðkomandi keyrt, sem náðaðir einstaklingar geti þó yfirleitt aldrei, myndi hraðaksturssekt ekki valda skilorðsrofi. Til þess þyrfti árásarbrot eða annað alvarlegra lögbrot. „Ástæða þess hversu skilorðsrof eru sjaldgæf yfirleitt er sú að þessir einstaklingar eru svo veikir að þeir hafa ekki burði til að brjóta af sér,“ segir hann. „Og ef þeir gera það, eru þeir yfirleitt ekki ábyrgir gjörða sinna.“ Ekki fást nánari upplýsingar um afbrot þeirra einstaklinga sem hlotið hafa náðun vegna þess hversu fangahópurinn er lítill og auðvelt er að rekja hvert tilfelli fyrir sig. Alls hafa 513 umsóknir um náðun borist síðan árið 1993. Af þeim voru 45 samþykktar.sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Sjá meira