Tilbúin að verja ríkisstjórnina falli 14. maí 2012 14:38 Birgitta, Margrét og Þór, þingmenn Hreyfingarinnar
Þingmenn Hreyfingarinnar eru tilbúnir að verja ríkisstjórnina falli takist samningar um framgang ákveðna mála sem flokkurinn telur brenna helst á þjóðinni. Þau Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir funduðu í gær með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, formönnum ríkisstjórnarflokanna eftir að þau sendu þeim bréf um hugsanlegt samstarf. Þau mál sem Hreyfingin telur mikilvægust um þessar mundir eru meðal annars þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá, persónukjör, leiðir til almennrar skuldaleiðréttingar og afnám verðtryggingar, sem og framtíðarfyrirkomulag fiskveiðistjórnunarkerfisins. Takist samningar um þessi mál er Hreyfingin tilbúin að verja ríkisstjórnina vantrausti komi til þess. Tilkynningu Hreyfingarinnar má lesa hér fyrir neðan:Í gær áttum við ágætan fund með Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, formönnum ríkisstjórnarflokkanna. Þar ræddum þau mál sem helst brenna á þjóðinni, þar á meðal þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá, persónukjör, gagnsæi, upplýsinga- og tjáningarfrelsi, leiðir til almennrar skuldaleiðréttingar og afnám verðtryggingar, sem og framtíðarfyrirkomulag fiskveiðistjórnunarkerfisins.Til fundarins var boðað af þeirra hálfu í kjölfar bréfs sem við sendum þeim um hugsanlegt samstarf um umrædd atriði. Að okkar mati kalla þær aðstæður sem nú ríkja í samfélaginu á aðgerðir að hálfu stjórnvalda og ábyrga afstöðu minnihlutans.Takist samningar um framgang ofangreindra mála lýsum við okkur reiðubúin að verja ríkisstjórnina vantrausti komi til þess. Við höfum aldrei heitið ríkisstjórninni stuðningi gegn vantrausti en höfum stutt öll góð mál óháð uppruna þeirra. Það er að okkar mati löngu tímabært að ríkisstjórnin forgangsraði með ofangreint í huga og forsenda þess að hún að sitja út kjörtímabilið. Okkur finnst brýnt að niðurstaða liggi fyrir í þessari viku.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira