Lífeyrissjóðir bjóða ríkinu að kaupa kröfur og taka á sig allan kostnað Höskuldur Kári Schram skrifar 14. maí 2012 19:45
Lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að hjálpa stjórnvöldum að finna viðeigandi lausnir á vanda skuldara með lánsveð. Þetta segir framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Afstaða sjóðanna til afskrifta sé hins vegar óbreytt. Fulltrúar lífeyrissjóðanna mættu til fundar með ráðherrum ríkisstjórnarinnar í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í dag vegna vanda þeirra tvö þúsund skuldara sem eru með lánsveð. Sjóðirnir hafa hingað til tekið illa í hugmyndir ríkisstjórnarinnar um lækkun skulda. „Við vorum boðuð af ráðherra og viljum heyra í honum hvaða hugmyndir hann hefur fram að færa og svo vinnum við úr því í sameiningu og vonandi ná allir einhverri ásættanlegri lausn," segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. En er ykkar afstaða, er hún óbreytt? „Hún hefur alltaf staðið óbreytt frá upphafi," svarar Þórey. Spurð hvort hún sjái engar leiðir til að landa málinu svarar hún: „Jú, hugsanlega, það er það sem við erum að gera núna, hjálpa stjórnvöldum að finna leiðir sem verða ásættanlegar fyrir þjóðfélagsþegnana." Lífeyrissjóðirnir hafa meðal annars boðið ríkisstjórninni að kaupa kröfurnar en það þýðir að ríkið tekur á sig allan kostnað vegna málsins. „Lífeyrisjóðirnir hafa ekki heimildir til að gefa eftir eignir og það stendur óbreytt og mun standa óbreytt áfram. Það er samhugur um að halda einu kerfi, það er lífeyrissjóðakerfi sem almenningur borgar í og stjórnir sjóðanna hafa engar heimildir til að gefa eftir eigu sjóðfélagana," segir Þórey að lokum.
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira