Íslenskur eftirlitsmaður á Íslendingaslag í Evrópukeppni félagsliða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2012 10:00 Guðmundur Guðmundsson, þjálfar Rhein-Neckar Löwen. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Handknattsleikssambandið hefur sent frá sér yfirlit yfir þá dómara og eftirlitsmenn sem hafa fengið verkefni erlendis á næstu vikum og þar er nóg að taka. Tvö dómarapör og fimm eftirlitsmenn verða á ferðinni á næstunni. Mesta athygli vekur verkefni Ólafs Arnar Haraldssonar. Ólafur Örn verður nefnilega eftirlitsmaður á síðari leik Rhein-Neckar Löwen og Eskilstuna Guif í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða karla en leikið verður í Mannheim í Þýskalandi laugardaginn 18.febrúar. Þetta er sannkallaður Íslendingaslagur því Íslendingar þjálfa bæði lið og íslenskir leikmenn spila með báðum liðum. Guðmundur Guðmundsson þjálfar Rhein-Neckar Löwen og Róbert Gunnarsson spilar með liðinu. Kristján Andrésson þjálfar lið Guif og bróðir hans Haukur Andrésson spilar með liðinu.Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson dæmdu í gær undanúrslitaleik Sádí Arabíu og Kóreu á Asíu Meistaramóti karla en sá leikur endaði með eins marks sigur Kóreu 27-26.Gunnar K. Gunnarsson var í gær eftirlitsmaður á leik FC Midtjylland og Larvik í Meistarakeppni Evrópu kvenna en leikið var í Ikast í Danmörku.Ingvar og Jónas munu dæma leik BM Atletico Madrid og Bjerringbro-Silkeborg í Meistaradeild Evrópu karla en leikið verður í Madrid á Spáni laugardaginn 11.febrúar.Guðjón L. Sigurðsson verður eftirlitsmaður á síðari leik Team Tvis Holstebro og Team Esbjerg í Evrópukeppni félagsliða kvenna en leikið verður í Holstebro laugardaginn 11.febrúarKristján Halldórsson verður eftirlitsmaður á fyrri leik Viborg HK og IK Savehof í Evrópukeppni bikarhafa kvenna en leikið verður í Viborg í Danmörku laugardaginn 11.febrúar.Helga Magnúsdóttir verður eftirlitsmaður Larvik og Grupu Asfi Itxako Navarra í Meistaradeild Evópu kvenna en leikið verður í Larvik í Noregi sunnudaginn 12.febrúar.Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson munu dæma leik OIF Arendal og Vfl Gummersbach í Evrópukeppni bikarhafa karla en leikið verður Nedenes í Noregi laugardaginn 18.febrúar.
Mest lesið Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Körfubolti Sunnudagsmessan: Hver hefur komið mest á óvart? Enski boltinn Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Körfubolti Ekitike tryggði sigurinn og fór beint í sturtu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslendingar í Evrópu og hafnabolti Sport Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Körfubolti Barcelona vill fá Rashford á tombóluverði Enski boltinn Rúnar Már og Amin missa af stórleiknum upp á Skaga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sjá meira