Innlent

Töluverð drykkjulæti á skólaböllum

Töluverð drykkjulæti hafa verið á skólaböllum á höfuðborgarsvæðinu, sem haldin eru um þessar mundir.

Lögreglan þurfti ítrekað að skerast í leikinn í gærkvöldi á skólaböllum , sem haldin voru á skemmtistöðunum Rúbín og Spott. Nokkrir unglingar voru teknir úr umferð og fluttir á lögreglustöð, þangað sem foreldrar þeirra þurftu að sækja þá. Sama var uppi á teningnum á skóalballi í Flensborgarskóla í Hafnarfirði í fyrrakvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×