Guðjón Valur: Enginn úti að aka í þessu móti Henry Birgir Gunnarsson í Novi Sad skrifar 26. janúar 2012 08:00 Guðjón Valur Sigurðsson skoraði alls 41 mark á Evrópumótinu í Serbíu og hér er eitt þeirra í uppsiglingu. Mynd/Vilhelm „
Það hefði verið mjög gaman að vinna. Við vorum að spila frábærlega og ég hélt við værum með þá. Þeir eru bara með svo mikið stórskotalið að það er enginn hægðarleikur að klára þá," sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson eftir lokaleik Íslands á EM sem endaði með jafntefli gegn Frökkum. „Þetta hefur verið svolítið skrítið mót. Ég var sáttur við Króataleikinn en ekki úrslitin. Var ósáttur við Noregsleikinn en sáttur við úrslitin og Slóveníuleikurinn var ekki nógu góður. Ungverjaleikurinn frábær og Spánverjarnir voru of sterkir. Mér finnst við vera að gera nokkuð vel úr því sem höfum," sagði Guðjón Valur. Liðið var án Ólafs Stefánssonar og Snorra Steins Guðjónssonar í Serbíu og svo var Alexander Petersson meiddur og tók vart þátt. Ingimundur Ingimundarson var einnig meiddur og lék takmarkað. „Strákarnir sem hafa komið inn hafa staðið sig mjög vel. Svo sér maður samt þessa skrokka sem eru að koma inn hjá hinum þjóðunum og maður hugsar bara hvað sé eiginlega verið að gefa þeim að borða. Við erum kannski að lenda aðeins á eftir þar. Ég er gríðarlega ánægður með hvernig Bjöggi og vörnin rifu sig upp þó svo það vanti Ingimund og Alexander," sagði Guðjón. „Sóknin var mjög góð allt mótið þó svo okkur hafi vantað lykilmenn. Rúnar hefur komið gríðarskemmtilega inn hjá okkur. Kári er sterkur og Ásgeir að axla meiri ábyrgð. Lykilmenn líka að standa sig vel. Það er ekki hægt að segja um neinn að hann hafi verið úti að aka í þessu móti. Flest var á uppleið í þessu móti og við erum nokkuð sáttir."
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira