Talsverðar aðgangshindranir á dagvörumarkaði 26. janúar 2012 09:26
Samkeppniseftirlitið birtir í dag skýrslu sína „Verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði". Í skýrslunni er varpað ljósi á verðþróun sl. sex ár hjá birgjum og smásölum og lýst þeim aðstæðum sem nýir og smærri smásalar standa frammi fyrir í verðsamkeppni.Aðgangshindranir Rannsókn Samkeppniseftirlitsins bendir til þess að talsverðar aðgangshindranir séu að dagvörumarkaði. Eiga þessar hindranir ekki síst rót sína að rekja til mismunandi kjara sem dagvöruverslanir njóta hjá birgjum. Þrjár stórar verslanasamstæður, Hagar, Kaupás og Samkaup, hafa um 90% markaðshlutdeild á dagvörumarkaði. Aðrar verslanir sem ekki eru hluti af umræddum verslanasamstæðum greiða birgjum mun hærra verð fyrir vörur, eða að meðaltali 15% hærra verð en stærsta verslanasamstæðan, Hagar, greiðir birgjum. Aðrar verslanir myndu því hafa mjög litla álagningu út úr vörusölu sinni ef þær ætluðu sér að jafna það verð sem lágvöruverðsverslanir innan verslanasamstæðnanna bjóða. Í nokkrum vöruflokkum er lægsta smásöluverð lágvöruverðsverslana lægra en innkaupsverð minni verslana sem ekki eru hluti af umræddum verslanasamstæðum. Minni verslanir verða því að keppa á grundvelli annarra þátta en verðs til að laða til sín viðskiptavini, svo sem hagfelldu samblandi verðstefnu, þjónustu, vöruúrvals og staðsetningar. Slík fjölbreytni í framboði dagvöruverslana getur vissulega verið neytendum til góðs. Vandi þeirra liggur hins vegar í auknum styrk lágvöruverðsverslana, en hlutur þeirra af heildarveltu á dagvörumarkaði hefur hækkað úr um 20% árið 1999 í um 63% árið 2010. Aðrar verslanir sem ekki njóta sambærilegra viðskiptakjara og lágvöruverðsverslanir hjá birgjum eiga því takmarkaða möguleika á að stunda verðsamkeppni á stærstum og vaxandi hluta markaðarins. Margt getur réttlætt mismunandi viðskiptakjör birgja gagnvart verslunum. Þannig er eðlilegt að stórar verslanakeðjur njóti magnafsláttar. Bónus kaupir til að mynda sexfalt meðalmagn verslana af algengum vörum og 75 sinnum meira magn en sú verslun sem minnst kaupir. Hagræði vegna dreifingarkerfis skiptir hér einnig máli. Þessi rök eiga hins vegar síður við í þeim tilvikum þar sem birgjar dreifa beint til verslana og annast jafnvel sjálfir uppröðun og framstillingu í hillur.Verðþróun Verð á dagvörum hefur hækkað um tæplega 60% í smásölu á sex ára tímabili frá ársbyrjun 2006 til ársloka 2011. Verð þessara vara hefur þróast með svipuðum hætti hjá birgjum. Samanburður á þróun dagvöruverðs, gengis og framleiðsluvísitölu fyrir mat- og drykkjarvörur bendir til að umrædd verðhækkun dagvöru skýrist fyrst og fremst af ytri aðstæðum og þá einkum gengishruni krónunnar í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Með því er ekki sagt að framangreind hækkun hafi í öllum tilvikum verið eðlileg og óhjákvæmileg, því kröftugri samkeppni á bæði birgja- og smásölustigi hefði getað leitt til meiri hagkvæmni og lægra verðs en ella.Tillögur Samkeppniseftirlitið telur vafasamt að viðskiptakjör birgja til smásöluverslana styðjist í öllum tilvikum við málefnaleg sjónarmið. Mun birgjum í mörgum tilvikum reynast erfitt að sýna fram á það, þó ekki væri nema af þeirri ástæðu að viðskiptasamningarnir eru í mörgum tilvikum ekki skriflegir. Sérstaklega er mikilvægt að birgjar hugi að því hvort munur á verði til einstakra smásala leiði af eðlilegu magnhagræði eða samkeppnishamlandi kaupendastyrk. Óeðlileg verðlagning getur einnig falið í sér brot á 11. gr. samkeppnislaga ef birgir er markaðsráðandi. Samkeppniseftirlitið hvetur birgja til að skoða verðstefnu sína að þessu leyti, einkum og sér í lagi gagnvart minni dagvöruverslunum. Eftirlitið getur hins vegar ekki á þessu stigi tekið afstöðu til þess hvort mikill verðmismunur milli verslana stafi í einstökum tilvikum af t.d. samkeppnishamlandi kaupendastyrk verslanasamstæðna og verslanakeðja eða eðlilegum sjónarmiðum um magnhagræði. Endanleg afstaða til slíks verður aðeins tekin í sérstöku stjórnsýslumáli þar sem mat er lagt á eðli viðkomandi viðskipta og markaðsstöðu þeirra fyrirtækja sem koma að þeim. Ekki er síður mikilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða til að efla samkeppni. Reynslan sýnir því miður að stjórnvöld hafa undantekningarlítið horft fram hjá tilmælum samkeppnisyfirvalda um að bæta samkeppnisaðstæður á dagvörumarkaði. Þetta á ekki síst við um málefni er varða vinnslu og sölu landbúnaðarafurða. Ljóst er að yfirvöld hafa ekki dregið fullnægjandi lærdóm af þeim jákvæðu áhrifum sem reynslan sýnir að heilbrigð samkeppni getur haft á ýmis svið landbúnaðar. Í því sambandi má sérstaklega nefna að stjórnvöld fóru að tilmælum samkeppnisyfirvalda og afnámu tolla á grænmeti í kjölfar þess að ólögmætt verðsamráð í framleiðslu og dreifingu á grænmeti var afhjúpað á árinu 2001. Til að mæta því var stuðningur til innlendra framleiðenda tekinn upp á heildsölustigi á sama tíma og fallið var frá markaðstruflandi aðgangshindrunum á smásölustigi. Jákvæð áhrif þess létu ekki á sér standa; innlend framleiðsla jókst, smásöluverð lækkaði og neysla jókst. Þessar breytingar bættu þannig bæði hag innlendra grænmetisframleiðenda og neytenda. Með hliðsjón af framangreindu telur Samkeppniseftirlitið m.a. mjög mikilvægt að búvörulög verði tekin til endurskoðunar með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu og auka virka samkeppni á mörkuðum fyrir landbúnaðarafurðir neytendum og þjóðfélaginu öllu til hagsbóta. Þurfa slíkar breytingar að fela í sér að dregið verði verulega úr innflutningshöftum á landbúnaðarafurðum og aðrar aðgangshindranir minnkaðar án þess að samkeppni verði raskað milli núverandi keppinauta. Breytingar í kjölfar slíkrar endurskoðunar þurfa m.a. að leiða til þess að innkoma nýrra keppinauta verði auðvelduð hvort heldur sem um er að ræða nýja innlenda framleiðendur (s.s. bændur, afurðastöðvar og/eða kjötvinnslufyrirtæki) annars vegar eða innflytjendur hins vegar. Slíkar aðgerðir þurfa ekki að útiloka eðlilegan stuðning við innlenda framleiðslu, sbr. fyrrgreindar úrbætur á grænmetismarkaði.
Tengdar fréttir Birgjar mismuna verslunum Minni verslanir á dagvörumarkaði greiða að meðaltali um 15% hærra verð fyrir vörur frá birgjum en Hagar, stærsta dagvörukeðja á Íslandi. Í nokkrum vöruflokkum er lægsta smásöluverð Haga lægra en það innkaupsverð sem minni verslunum býðst hjá birgjum. 26. janúar 2012 06:00 Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukningu á verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukningu á verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Sjá meira
Birgjar mismuna verslunum Minni verslanir á dagvörumarkaði greiða að meðaltali um 15% hærra verð fyrir vörur frá birgjum en Hagar, stærsta dagvörukeðja á Íslandi. Í nokkrum vöruflokkum er lægsta smásöluverð Haga lægra en það innkaupsverð sem minni verslunum býðst hjá birgjum. 26. janúar 2012 06:00