Kaupþing stefnir Vestmannaeyjabæ Karen Kjartansdóttir skrifar 21. júlí 2012 18:30
Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt Vestmannaeyjabæ og krefur hann um rúmlega milljarð króna. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir málið risavaxið fyrir lítið bæjarfélag en eyjamenn geri sjóklárt og undirbúi sig undir dómstólaleið. Slitastjórn Kaupþings vill að Vestmannaeyjabær endurgreiði peningamarkaðsinnlán sem bærinn tók út 8. september árið 2008 - eða rétt fyrir hrun og þar með notið betri stöðu en aðrir eigendur innlána. Upphæðin nemur einum milljarði og þrettán milljónum króna. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja segir peningana hafa verið í eigu bæjarfélagsins en þeir hafi verið í fjárstýringu hjá Kaupþingi. Hann segir að í stefnu Kaupþings komi fram: „að viðkomandi fjárhæð hafi verið greidd fyrr en eðlilegt var í skilningi laga (134. gr. laga nr. 21/1991) um gjaldþrotaskipti." „Maður hnýtur náttúrulega um orðalagið að þeir telja að við höfum tekið fjármagnið út óeðlilega snemma," segir Elliði. „Hvort eðlilega snemmt fyrir slitastjórnina hefði þá verið að við hefðum beðið fram yfir hrun og tapað þessum fjármunum. Ég þekki ekki þankaganginn á bak við þessar hugrenningar." Elliði segir að í bæjarfélaginu hafi það verið hafi verið reynt að taka litla áhættu og ef menn hafi fengið slæma tilfinningu gagnvart fjármálastofnunum hafi fé verið flutt til. Það hafi forðað bæjarfélaginu frá því að tapa peningum í fjármálahruninu. Hann geti þó ekki tjáð sig um þennan tiltekna gjörning þar sem stefnt er að því að málið verði tekið fyrir dóm í september. Hann segir Vestmannaeyjar lítið sveitarfélag sem óvant sé að takast á við mál sem þessi en stefnt sé að því að nýta tímann vel og verja Vestmannaeyjar þessari vá sem öðrum. „Við notum tímann núna og gerum sjóklárt þetta eru miklir hagsmunir fyrir okkur og væntanlega fyrir þá sem stefna okkur líka," segir Elliði.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira