Vill að fundargerðir ríkisstjórnar um félag Nubos verði opinberaðar Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. júlí 2012 12:45
Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, óskar eftir því að fundargerðir ríkisstjórnarinnar frá fundi þar sem fjallað var um stofnun íslensks félags í eigu Huang Nubo verði gerðar opinberar. Ívilnanasamningur var kynntur ríkisstjórninni í vor en engin ákvörðun var tekin. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að málinu hefur í raun verið mjög lítil. Nefnd á grundvelli laga um ívilnun vegna nýfjárfestinga mælti í vor með því að veita Huang Nubo ívilnun, meðal annars skattundanþágu, vegna uppbyggingar á Grímsstöðum á Fjöllum. Umsókn um ívilnun hefur þó ekki verið samþykkt af iðnaðarráðuneytinu. Áform eru um að Nubo leigi jörðina af félagi í eigu sex sveitarfélaga á Norðausturlandi. Hugmyndin með ívilnunarsamningunum er að hver og einn fjárfestingarsamningur fari ekki fyrir ríkisstjórn og Alþingi. Ívilnanasamningurinn við Nubo var kynntur fyrir ríkisstjórninni í vor, en engin ákvörðun var tekin. Iðnaðarráðherra hefur enga ákvörðun tekið í málinu, enda liggja ekki allir samningar fyrir. Þá hafa landaskipti ekki verið kláruð á jörðinni. Það var svo hinn 12. júní sl. sem efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn að Nubo yrði heimilað að stofna íslenskt einkahlutafélag, en það er forsenda þess að fjárfestingarsamningur á grundvelli laga um ívilnun vegna nýfjárfestinga nái fram að ganga. Ríkisstjórnin þurfti í raun ekki að samþykkja stofnun félagsins, heldur var minnisblað um málið kynnt ríkisstjórninni í upplýsingaskyni. Engin ákvörðun um ívilnun var tekin á þessum fundi. Einu afskipti ríkisstjórnarinnar af málinu eru í raun þessi, samkvæmt heimildum fréttastofunnar og eru þau þar af leiðandi afar takmörkuð. Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, kallar eftir því á Facebook vefsíðu sinni að þjóðin fái strax allar upplýsingar úr fundargerðum ríkisstjórnarinnar þegar ákveðið var að heimila Nubo að stofna félag hér á landi og jafnframt bókun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, sem gerði athugasemd við það á umræddum ríkisstjórnarfundi.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Sjá meira