Sport

Flottustu myndirnar frá keppni dagsins á Ólympíuleikunum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Fjórtán gull fóru á loft í dag á Ólympíuleikunum í London þar sem Bandaríkin, Kína, Frakkland og Norður-Kórea eignuðust öll tvo Ólympíumeistara. Ljósmyndarar AFP-fréttastofunnar voru á fullu í allan dag og Vísir hefur tekið saman myndasafn með bestu myndum dagsins.

Frakkar unnu bæði sín verðlaun í sundi, Bandaríkin vann eitt gull í sundi og annað í skotfimi, Kínverjar fengu sín gullverðlaun í dýfingum og skotfimi en gull Norður-Kóreumanna komu í júdó kvenna og lyftingum karla.

Suður-Kórea, Holland, Ungverjaland, Georgía, Suður-Afríka og Kasakstan eignuðust líka einn Ólympíumeistara sunnudaginn 29. júlí.

Bestu myndir dagsins frá ÓL má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×