Gera alvarlegar athugasemdir við FME- segja sérreglur gilda um Sigurð 19. desember 2012 17:34 Sigurður Jóhannesson er lengst til vinstri. Myndin er tekin árið 2010, þegar Sigurður var formaður stjórnar.
Samtök atvinnulífsins gera alvarlega athugasemd vegna tilkynningar Fjármálaeftirlitsins frá því í gær um fyrrverandi stjórnarmann Stapa lífeyrissjóðs. Þar var sagt frá því að Fjármálaeftirlitið hefði gert Sigurði Jóhannessyni að hætta störfum sem stjórnarmaður hjá Stapa lífeyrissjóði. Ástæðan var sú að hann taldist ekki búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt. Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins er það því haldið fram að sérreglur virðist gilda um Sigurð, en FME hefur víst ekki kannað hæfi varamanna í stjórnum að sögn Samtaka atvinnulífsins. Svo segir í tilkynningu samtakanna að hann sé fullkomlega hæfur til starfanna ólíkt mati FME. Orðrétt segir í tilkynningunni: „Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri SAH afurða, var tilnefndur af hálfu Samtaka atvinnulífsins til stjórnar lífeyrissjóðsins Stapa um tveggja ára skeið frá aðalfundi 2010 til jafnlengdar 2012. Aðalfundurinn var haldinn þann 8. maí og kom þá nýr stjórnarmaður til starfa í stað Sigurðar. Breytingin var tilkomin að ósk Sigurðar sem féllst hins vegar á að SA tilnefndi hann sem varamann í stjórn lífeyrissjóðsins. Það er því rangt sem haldið er fram í tilkynningu FME frá 18. desember að Sigurði Jóhannessyni hafi verið vikið úr stjórn Stapa, honum var hins vegar vikið sem varamaður úr stjórninni. SA tilnefna árlega vel á þriðja tug karla og kvenna til setu í stjórnum lífeyrissjóða og annan eins fjölda sem varamenn. Fram til þessa hafa einungis stjórnarmenn lífeyrissjóðanna þurft að uppfylla hæfisskilyrði Fjármálaeftirlitsins og hafa varamenn í stjórnunum hvorki verið kallaðir til hæfisprófs né sérstakra námskeiða á vegum FME. Ekki er heldur vitað til þess að slíkt hafi staðið til. FME hefur sent bréf til varastjórnarmanna þar sem þeir eru beðnir um að útskýra af hverju þeir teldu sig hæfa til slíkra starfa og gefið út staðfestingu á hæfi þeirra að fengnu svari. Sú ákvörðun FME að víkja Sigurði úr varastjórn virðist merki um sérreglu gagnvart honum þar sem hann er eini varastjórnarmaðurinn sem vitað er um að gerð hafi verið krafa um að standist hæfismat stjórnarmanna. Samtök atvinnulífsins telja að Sigurður sé fullkomlega hæfur til umræddra starfa, fjölmargir stjórnarmenn fjármálafyrirtækja hafa gengist undir hæfispróf FME oftar en einu sinni. Sigurður hugði ekki á áframhaldandi stjórnarsetu og því virtist ekki ástæða til þess að eyða tíma hans eða hæfnismatsnefndarinnar í þá vinnu, í ljósi þess að sem gilt hefur almennt um varamenn í stjórnum lífeyrissjóða." Þess má geta að Sigurður var formaður stjórnar Stapa lífeyrissjóðs árið 2010.
Tengdar fréttir Stjórnarmanni vikið úr stjórn Stapa út af þekkingar- og reynsluleysi Fjármálaeftirlitið hefur gert Sigurði Jóhannessyni að hætta störfum sem stjórnarmaður hjá Stapa lífeyrissjóði samkvæmt tilkynningu sem finna má á vef FME. Ástæðan var sú að hann taldist ekki búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt. 18. desember 2012 17:59 Mest lesið Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Sjá meira
Stjórnarmanni vikið úr stjórn Stapa út af þekkingar- og reynsluleysi Fjármálaeftirlitið hefur gert Sigurði Jóhannessyni að hætta störfum sem stjórnarmaður hjá Stapa lífeyrissjóði samkvæmt tilkynningu sem finna má á vef FME. Ástæðan var sú að hann taldist ekki búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt. 18. desember 2012 17:59
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur