Vill svipta lögbrjóta stöðu hælisleitenda 28. júlí 2012 09:00 Ólafur William Hand segir það geta kostað Eimskip stórfé að menn brjótist inn á athafnasvæði þess. Fréttablaðið/gva „
Verði menn uppvísir að svona lögbroti eiga þeir náttúrulega að missa öll réttindi sem hælisleitendur,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, um þá menn sem hafa verið gripnir við að brjótast inn á athafnasvæði fyrirtækisins undanfarið og reynt að lauma sér um borð í skip. Níu slík tilvik hafa komið upp síðan í byrjun maí – síðast í fyrrinótt – sem Ólafur kallar sprengingu. „Í öllum tilfellum voru þetta menn sem voru að nota ísland sem stökkpall til Ameríku.“ Hann kallar eftir hertum viðurlögum við þessu háttalagi. „Þegar þessir einstaklingar ná ítrekað að brjóta af sér, komast inn á svæði og reyna að komast um borð í skip án þess að það séu neinar afleiðingar af málinu þá hringja þeir náttúrulega til sinna heimahaga og segja mönnum að hér fái þeir húsnæði, peninga, læknisaðstoð og frítt í sund og að hér geti þeir brotist inn á athafnasvæði skipafélaga án þess að það sé tekið á málunum að öðru leyti en að þeim sé stungið í fangelsi í tíu tíma og svo sleppt svo þeir geti reynt aftur í næstu viku.“ Menn sem hafi sýnt með háttalagi sínu að þeir vilji ekki vera á Íslandi eigi með því að fyrirgera rétti sínum til að teljast hælisleitendur. Þessu er Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, alls-endis ósammála. „Engan veginn. Það mundi aldrei ganga. Einstaklingur sem þarf á vernd að halda, hann þarf á vernd að halda hvort sem hann vill vera á staðnum eða ekki.“ Hún segir þó ósamræmi í almennum viðurlögum við innbrotum á flugverndarsvæði annars vegar og hafnarsvæði hins vegar. Eðlilegt sé að gera kröfu um að þeim sem brjótast inn á viðkvæm hafnarsvæði sé refsað. Ólafur segir að málin hafi þegar kostað Eimskip tugi milljóna. Bæta hafi þurft öryggisgæslu, það kosti að kæra málin til lögreglu og árið 2009 hafi þurft að snúa skipi við 90 sjómílur frá landi þegar laumufarþegi uppgötvaðist. Þá segir hann að það gæti haft miklar afleiðingar fyrir Eimskip ef laumufarþegi kæmist með skipi alla leið vestur um haf og fyndist þar. „Það mundi þýða stórar sektir frá bandarískum yfirvöldum, sem gætu hlaupið á milljónum, við mundum að öllum líkindum þurfa að standa straum af kostnaðinum sem hlytist af úti, greiða fyrir hann flugfar aftur til Íslands og kannski fylgdarmenn með honum, félagið væri komið á einhvers konar eftirlitsskrá og þetta gæti tafið fyrir vöruafgreiðslu. Svo gætu þessir menn hreinlega dáið á leiðinni og það væri líka vont – ef þeir frysu í hel einhvers staðar á Grænlandssundi. Það væri örugglega ekkert skemmtilegt fyrir skipverja að koma að frosnu líki frammi í stefni um miðjan vetur.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent Fleiri fréttir Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Sjá meira