Sport

Roger Federer þakkar Ólympíuleikunum fyrir að hann kynntist eiginkonunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roger Federer og Mirka.
Roger Federer og Mirka. Mynd/AFP
Svissneski tenniskappinn Roger Federer er einn af þeim sigurstranglegustu í tenniskeppni Ólympíuleikanna í London, enda efstur á heimslistanum og búinn að vinna fleiri risamót en nokkur annar tenniskappi í sögunni.

Federer vann gull í tvíliðaleik í Peking fyrir fjórum árum en eina mótið sem hann á eftir að vinna á frábærum ferli er einliðaleikur karla á Ólympíuleikum. Hann datt út í átta liða úrslitum 2008, komst bara í 2. umferð 2004 og tapaði í bronsleiknum í Sydney fyrir tólf árum.

Þrátt fyrir að rétt missa af verðlaunum í Sydney þá á Federer góðar minningar frá leikunum í Sydney. Hann kynntist nefnilega konu sinni í matsalnum í Ólympíuþorpinu þegar Federer hitti slóvakísku tenniskonuna Mirka Vavrinec. Þau hafa verið saman síðan og eignuðust tvíbura saman fyrir þremur árum síðan.

„Þetta er einn af merkustu viðburðunum í heiminum og ekki bara í íþróttunum heldur í öllu. Það er einstakt að fá að taka þátt í leikunum og það jafnast ekkert við það að ná að vinna til verðlauna á leikunum. Leikarnir hafa síðan extra þýðingu fyrir mig útaf því hvernig lífið mitt hefur þróast," sagði Roger Federer.

„Það hefur alltaf gefið okkur Mirku og okkar sambandi mikið að rifja upp hvar við hittumst fyrst og það er mjög skemmtilegt að það hafi verið á Ólympíuleikunum," sagði Federer en eiginkonan varð að leggja tennisskóna á hilluna fyrir tíu árum vegna þráðlátra meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×