Fara á hlaupahjólum landshorna á milli 31. júlí 2012 04:00 Það er löng leið sem bíður þeirra Davids og Andrea en þeir hyggjast fara á hlaupahjólum austur á Egilsstaði á fimmtán dögum. fréttablaðið/ernir
David og Andrea hófu í gær ferð sína frá Reykjavík til Egilsstaða á hlaupahjólum. Þeir hafa aðeins fimmtán daga og nota þennan merkilega fararskjóta því gangan tekur of langan tíma. Toppurinn á tilverunni að ferðast á Íslandi. Þeir David Ceccarelli og Andrea Gesmundo eru ítalskir ferðamenn hér á landi. Það væri ekki í frásögur færandi nema hvað þeir ferðast á hlaupahjólum frá Reykjavík og ætla, á fimmtán dögum, alla leið til Egilsstaða. Blaðamaður og ljósmyndari Fréttablaðsins hittu þá David og Andrea þegar þeir voru komnir undir Úlfarsfell rétt fyrir hádegi í gær. „Fyrst var planið að fara yfir Kjöl en nú held ég við förum bara hringveginn,“ segir David sem er þaulvanur ferðalangur á hinum ýmsu fararskjótum. Þeir félagar eru báðir frá Toscana-héraði og búa og starfa í bænum Prato í grennd við Flórens á Mið-Ítalíu. David er vefstjóri og myndskreytir barnabækur með fram því. Andrea er endurskoðandi fyrir hið opinbera á Ítalíu og er að fara í fyrsta sinn með vini sínum í svona ferð. „Það er engin sérstök ástæða fyrir þessari ferð,“ segir David. „Ég hef meðal annars farið á hjólabretti eftir öllum Berlínarmúrnum, ég var fyrsti Ítalinn til að ganga eftir „mænu Englands“, frá syðsta odda að landmærunum við Skotland og hef farið gangandi yfir allt Lappland.“ Í öll skiptin hefur David verið styrktur af hinum ýmsu vörumerkjum. Nú fara þeir Andrea um landið á tékkneskum hlaupahjólum. Spurður hvers vegna þeir séu að þessu segir David: „Á flugvellinum sáum við fullt af fólki með hjólin sín og risastórar töskur undir þau. Við þurftum bara lítinn kassa undir hjólin okkar. Það er kannski aðalástæða þess að við förum á hlaupahjólum, þau eru svo fyrirferðarlítil.“ Hann segir þá félaga aðeins hafa fimmtán daga í ferðalagið. „Það var ómögulegt að ganga þessa leið á fimmtán dögum svo við gripum eitthvað sem svipar til göngunnar. Við hefðum auðvitað getað hjólað, það hefði jafnvel orðið mjög skemmtilegt, en af því að ég hef mikinn áhuga á hjólabrettum þá varð hlaupahjólið auðvitað fyrir valinu.“ „Fyrir mér er það toppurinn á tilverunni að koma til Íslands eftir að hafa farið í svona ferð til Lapplands og Bretlands. Ég hef alltaf haft áhuga á Íslandi og nú var tækifærið. Ef maður lætur tækifærin fara frá sér þegar þau gefast mun maður tapa þeim að eilífu.“ birgirh@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira