Talið er að 200 þúsund hafi flúið Aleppó Karen Kjartansdóttir skrifar 31. júlí 2012 12:54 Stöðugir bardagar eru í Sýrlandi.
Talið er að um 200 þúsund manns hafi flúið borgina Aleppó um helgina og undirbúa þjóðir sig undir aukin straum flóttamanna. Forstjóri Útlendingastofnunnar segir að hér á landi verði fylgt fordæmi annarra Evrópuþjóða um að fólk verði talið flóttamenn við það eitt að koma frá Sýrlandi og fái að auki viðbótarvernd. Sameinuðu þjóðirnar vara við mikilli neyð almennings í Aleppo. Valerie Amos, mannúðarfulltrúi Sameinuðu þjóðanna, greindi frá því í gær að ekki væri vitað hve margir væru enn í borginni en talið væri að 200 þúsund manns hefðu flúið hana um helgina. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að Evrópuþjóðir séu undirbúnar fyrir straum flóttamanna frá Sýlandi og Íslendingar muni fylgja fordæmi þeirra. „Allar Evrópuþjóðirnar eru í viðbragðsstöðu, við eigum í samskiptum í gegnum tölvupósta, ríki gera ráð fyrir því að fá einhvern fjölda til sín, mismundandi eftir því hvar þau liggja en við sjáum að allir búnir eða eru að undirbúa sig fyrir komu fleiri en eru í venjulegu ári," segir hún. Kristínu þykir þó fremur ólíklegt að Íslendingar muni verða varir við mikinn fjölda vegna legu landsins. Útlendingastofnun hafi því ekki sérstakan undirbúning annan en þann að fylgja eftir þeirri línu sem mörkuð hefur verið annar staðar í Evrópu næstu þrjú ár. „Línan verður sú og ég veit að Svíþjóð og Holland hafa ákveðið það að það verður svokölluð viðbótarvernd, það er að þú ert talin vera flóttamaður við það eitt að koma frá Sýrlandi að því gefnu að það tengi þig ekkert við þau stjórnvöld sem fólkið er að flýja." Einn maður hefur þegar leitað hælis hér landi. Kristín segir að hann mál hafi orðið til þess að Útlendingastofnun ákvað að kanna gaumgæfilega hvernig aðrar þjóðir meðhöndluðu umsóknir frá Sýrlandi og eftir það hafi verið ákveðið að sami háttur yrði hafður á hér á landi. „Ég tók þá ákvörðun að við myndum fylgja þeirri línu þannig að sú umsókn var sett framfyrir aðrar. Í því tilviki er jafnframt um að ræða fjölskyldu sem getur verið í hættu. Þannig ef fleiri umsóknir koma frá Sýrlandi þá mun það sæta sömu meðferð, það er að þetta fer í forgang í málsmeðferðinni. En þá má einnig geta þess að við höfum dvalarleyfisumsókn þar sem viðkomandi er staddur í Sýrlandi og við munum líka setja hana í forgang vegna þessa."
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira