Innlent

Metafli: Verðmætið er átján milljónir á mann

Togbáturinn Steinunn SF frá Hornafirði setti aflamet í flokki slíkra báta þegar hann landaði 723 tonnum úr tíu róðrum í síðasta mánuði. Samkvæmt vefsíðunni Aflafréttir.com var aflaverðmætið hátt í 200 milljónir króna, eða hátt í 18 milljónir króna á hvern skipverja í 11 manna áhöfn bátsins.

Það þýðir að hásetahluturinn er um 2,8 milljónir króna.

Steinunn átti fyrra aflamet togbáts í einum mánuði, sem hún setti fyrir umþaðbil ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×