Innlent

Ríkisstjórnin fundar fyrir austan

Ríkisstjórnarfundur verður haldinn á Egilsstöðum núna klukkan níu en um er að ræða verður fyrsta ríkisstjórnarfundinn sem haldinn er í þessum landshluta.

Að fundi loknum ætla ráðherarr að ræða við sveitarstjórnarmenn af svæðinu og heimafólk ætlar að nota tækifærið og afhenda Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra undirskriftarlista vegna Norðfjarðarganga.

Í kvöld verður svo opinn borgarafundur í Nesskóla í Neskaupstað þar sem fjallað verður um fiskveiðistjórnarkerfið og stöðu Norðfjarðarganga. Þar mun sjávarútvegsráðherra, ásamt fleirum, hafa farmsögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×