Endurútreikningar gengislána ekki í sjónmáli Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 8. maí 2012 19:09
Endurútreikningar á tugþúsundum ólölegra gengislána eru ekki í sjónmáli. Fjármálafyrirtækin hyggjast ekki reikna lánin út að nýju eftir nýjasta gengislánadóminn- heldur fara í fleiri dómsmál til að skera úr um óvissu sem þau telja enn ríkja um útreikninga lánanna. Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður hefur krafist þess við Héraðsdóm Reykjavíkur að slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans verði vikið frá störfum. Krafan verður tekin fyrir á næstu dögum. Krafan er sett fram vegna þess að umbjóðendur hans, hjón í Vesturbænum sem unnu mál gegn slitastjórninni um miðjan febrúar fyrir Hæstarétti, hafa nú, þremur mánaðamótum síðar, enn ekki fengið endurútreikning í samræmi við dóminn. Ragnar segir svör slitastjórnar ýmist hafa verið „hreinir útúrsnúningar eða alls engin". Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnar, óttast ekki að verða vikið frá störfum, dómkröfur hjónanna í Vesturbænum hafi verið að fullu efndar af hálfu slitastjórnar. Eina sem út af standi sé endurútreikningur eftir seinni gengisdóminn. Ekki eitt einasta gengislán hafi verið endurreiknað eftir þann dóm, enda hafi Hæstiréttur ekki kveðið á um hvernig haga beri endurútreikningi, að mati Hlyns, ekki einu sinni í tilviki hjónanna í Vesturbænum. Sigurður Hreinn Sigurðsson, sem vann málið í febrúar, er mjög ósáttur við framferði slitastjórnar og telur hana ekki í þágu viðskiptavina heldur einvörðungu til að hámarka hagnað þrotabúsins. Hlynur telur að eina leiðin til að skera úr um hvernig beri að endurreikna lán hjónanna og annarra sé að fara í enn frekari dómsmál. Lausn sé því ekki í sjónmáli og endurreikningar ekki væntanlegir á næstu mánuðum.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Sjá meira