Sex ára drengur varð vitni að morðtilræði við móður sína Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. maí 2012 19:34
Karlmaður sem sakaður er um að hafa reynt að bana eiginkonu föður síns þann 1. apríl síðastliðinn mun sæta gæsluvarðhaldi til 30. maí næstkomandi. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn í dag.Tvær árásir sömu nótt Maðurinn réðst á konuna um miðnætti þann dag eftir að hann ásakaði hana um að hafa stolið frá sér 1.500 krónum. Hann réðst á hana þar sem hún sat í sófa í stofunni og tók hana kverkataki og kýldi hana í síðu, hendur og andlit. Þá reyndi hann að kæfa hana með því að halda kodda fyrir andliti hennar. Lögreglan kom að og vísaði manninum út ur íbúðinni. Hann sagði að fyrir þetta yrði hún að fara úr lífi föður síns annars myndi hann drepa hana. Síðar sömu nótt barst lögreglu tilkynning um að konan væri fyrir framan heimili sitt að hrópa eftir hjálp. Þegar lögregla kom á vettvang var þar hópur fólks saman kominn á stétt fyrir framan heimili konunnar en þrír karlmenn héldu manninum niðri og konan lá meðvitundarlaus í jörðinni um tveimur metrum frá og augljóst að á hana hafði verið ráðist. Á vettvangi fannst stór kertastjaki sem reyndist vera barefli sem notað var til að berja konuna.Sonurinn vitni að árásinni Vitni sögðu við lögreglu að sex ára gamall sonur konunnar hafi verið á vettvangi árásarinnar. Einn nágranni konunnar tók hann inn í íbúð til sín til að hlúa að honum en sonurinn óttaðist mjög að mamma sín væri dáin. Í gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar kom fram að um mjög alvarlega atlögu sé að ræða og tilviljun ein réð því hverjar afleiðingar hennar urðu. Brot mannsins kunni að varða 16 ára fangelsi eða allt að ævilöngu.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira