Tveir þriðju umsækjenda fá ekki sumarstarf hjá borginni 18. maí 2012 10:00
Reykjavíkurborg hefur synjað nálægt tveimur þriðju umsækjenda um sumar- og afleysingastörf síðan sumarið 2009. Fjöldi umsækjenda nær tvöfaldaðist eftir efnahagshrunið, en fjöldi starfa hefur ekki breyst mikið, að undanskildu sumrinu í fyrra þegar tæplega tvö þúsund störf voru í boði. Í ár eru þau tæplega 1.400 og umsækjendur rúm fjögur þúsund. Gerður Dýrfjörð, deildarstjóri atvinnumála hjá Hinu húsinu, segir þróunina áhyggjuefni. „Fólk hefur vissulega áhyggjur. Við fáum fleiri símtöl á dag frá fólki sem er að spyrjast fyrir um þessi mál," segir hún. Flestir umsækjendur eru nemendur á aldrinum 17 til 20 ára og segir Gerður foreldra yngra fólks, sem ekki hefur fengið vinnu, uggandi yfir stöðunni. „Þetta er áhyggjuefni, en á móti kemur að borgin beitir sér mikið í málefnum þeirra sem hafa verið án vinnu til lengri tíma," segir hún. Laufey Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnumálastofnun, segir að almennt sé erfiðara fyrir ungt fólk að fá vinnu. „Ungmennin hafa yfirleitt minni starfsreynslu og minni menntun," segir hún, en nemendur á milli anna hafa ekki rétt á atvinnuleysisbótum. „Við tókum áður á móti námsmönnum á sumrin og áttum von á þúsundum manna, en raunin var sú að flestir fengu vinnu að lokum. En auðvitað er alltaf einhver hópur sem ekki fær vinnu." Heildarfjöldi starfsumsókna er þó talsvert meiri en fjöldi umsækjenda, því flestir sækja um fleiri störf en eitt. Flestar stöður eru í boði hjá umhverfissviði borgarinnar, eða um 450. Velferðarsvið og ÍTR eru næststærstu flokkarnir. Alls eru 1.800 störf í boði hjá Vinnuskólanum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla og verða allir ráðnir til borgarinnar sem sækja um.
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira