Skuldir íslenskra heimila lægri en í Danmörku og Hollandi Magnús Halldórsson skrifar 7. júní 2012 12:15 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Skuldir heimila á Íslandi sem hlutfall af landsframleiðslu minnkuðu um átta prósent í fyrra á sama tíma og kaupmáttur jókst um tæplega fjögur prósent. Skuldir heimila hér á landi í hlutfalli við ráðstöfunartekjur eru nú minni en í bæði Danmörku og Hollandi. Eftir hrun fjármálakerfisins og krónunnar, haustið 2008, hækkuðu skuldir íslenskra heimila skarplega og voru þær hæstu í Evrópu í hlutfalli við ráðstöfunartekjur. Í Fjármálastöðugleikariti Seðlabanka Íslands, sem kynnt var í gær, kemur fram að skuldirnar hafi lækkað um átta prósent að raunvirði í fyrra og er staðan nú sú að skuldir heimila hér á landi eru nú minni en bæði í Danmörku og Hollandi, en eftir hrunið hækkuðu skuldirnar upp fyrir báðar þessar þjóðir. Skuldirnar eru þó enn háar og mælast nú um 240 prósent af ráðstöfunartekjum, en í Noregi og Svíþjóð er þetta sama hlutfall frá 150 til 170 prósent. Í riti Seðlabankans segir að allt bendi til þess að skuldir íslenskra heimila í hlutfalli við ráðstöfunartekjur muni halda áfram að lækka, samhliða almennum efnahagsbata. Staðan er þó enn viðkvæm þar sem vanskil íslenskra heimila í íslenska bankakerfinu eru enn mikil. Þá eru versnandi verðbólguhorfur til þess fallnar að hækka verðtryggðar skuldir og vaxtakostnað einnig, til lengri tíma litið. Sjá má fjármálastöðugleikarit Seðlabanka Íslands, sem kynnt var í gær, hér.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent