Björgvin: Var að losna við stóran bakpoka af áhyggjum og veseni Henry Birgir Gunnarsson í Novi Sad skrifar 22. janúar 2012 18:19 Björgvin fagnar innilega í dag. mynd/vilhelm
Það er óhætt að segja að það hafi þungu verið létt af markverðinum Björgvini Páli Gústavssyni í dag. Hann hefur átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er EM en sýndi sitt rétta andlit gegn Ungverjum í dag. Frammistaða hans átti stóran þátt í sigrinum góða. "Ég var að rífa af mér risastóran bakpoka sem var fullur af áhyggjum og veseni. Þetta er mikill léttir og það er geggjuð tilfinning að klára svona leik," sagði Björgvin brosmildur. "Það hafa margir hjálpað mér eins og Einar Þorvarðar. Svo eru strákarnir náttúrulega að spila frábæra vörn í dag. Það hjálpar mér eðlilega mikið." Björgvin Páll átti einstaklega erfitt uppdráttar eftir leikinn gegn Slóveníu. Um nóttina skrifaði hann síðan blogg þar sem hann lýsti tilfinningum sínum. Bloggið snart við mörgum og Björgvin hefur fengið jákvæða strauma víða að síðan. "Það er ótrúlegt að finna fyrir þessum stuðningi sem ég er að fá um allt. Ég er að sms, tölvupóst og svo kveðjur á Facebook. Maður finnur vel að allir vilja hjálpa." Björgvin sagði að það hafi allt verið undir í þessum leik gegn Ungverjum. "Það er frábært að sjá hvað við mætum klárir í þennan leik. Mótið hefði verið búið ef við hefðum tapað. Þegar við erum tilbúnir og til í slaginn þá er allt mögulegt," sagði Björgvin. "Við sýndum það í dag að við erum til alls líklegir í framhaldinu og við ætlum að bíta frá okkur. Það er alveg klárt. Við ætlum að njóta þess að spila áfram og ef allt gengur upp getum við gert usla í næstu leikjum."
Mest lesið Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Körfubolti Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Fótbolti Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods Golf Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Körfubolti Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Körfubolti Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Handbolti Fleiri fréttir Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti