Vill ekki að öll atkvæði hafi jafnt vægi BBI skrifar 8. október 2012 21:11 Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/E. Ól.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki hlyntur því að landið verði eitt kjördæmi og vægi allra atkvæða á landinu verði jafnt. Í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 20. október næstkomandi verður m.a. kosið um hvort rétt sé að hafa vægi allra atkvæða jafnt á landinu. Einar telur mikilvægt að horfa til fleiri þátta en vægis atkvæða þegar kosningafyrirkomulagið er mótað. Til dæmis þurfi að hyggja að aðgengi fólks að þingmönnum og þar með möguleikum þeirra til að hafa áhrif á störf þingsins í gegnum þingmenn sína. Einnig sé rétt að velta fyrir sér hvernig fyrirkomulag auðveldar stjórnarmyndun í landinu eftir kosningar. Einar telur einnig vert að huga að því að kjördæmi verði ekki of stór. Ef landið yrði eitt kjördæmi yrði samband almennings við þingmenn talsvert verra. Einar bendir á að hægt sé að draga ákveðinn lærdóm af stjórnlagaþingskosningunum þar sem landið var eitt kjördæmi. Af 25 fulltrúum komu aðeins tveir af landsbyggðinni, annar frá Akureyri og hinn úr Þingeyjasýslu. „Og vitaskuld kom það fram í áherslum sem birtast okkur í tillögum stjórnlagaráðsins. Það blasir við hverjum einasta lifandi manni," segir hann og nefnir til dæmis tillögurnar ráðsins um kjördæmaskipan. Einar ræddi málin við þáttarstjórnendur útvarpsþáttarins Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni, en hljóðbrotið má nálgast hér að ofan.
Mest lesið Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira