Ekki verið að fara bakdyraleið að samningum við Nubo Erla Hlynsdóttir skrifar 4. maí 2012 19:00
Iðnaðarráðherra segir alls ekki verið að fara bakdyraleið að samningum við Huang Nubo með því að leigja honum land Grímssstaða á Fjöllum. Nubo sjálfur virðist kominn lengra í samningsferlinu en íslensk stjórnvöld, ef marka má yfirlýsingar hans í kínverskum fjölmiðlum í dag. Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti iðnaðarráðherra niðurstöður nefndar á vegum ríkisstjórnarinnar, sem komst að þeirri niðurstöðu að fyrirhugaður leigusamningur við Nubo uppfylli skilyrði sem sett eru í lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga. „Það er þá bara staðfesting á því að þessi nefnd mælir með því við iðnaðarráðherra og við stjórnvöld að ef að til þessa verkefnis kæmi þá væru öll skilyrði fyrir því að gera við fyrirtækið og við féliagð, fjárfestingasamning," segir Oddný Harðardóttir, iðnaðarráðherra. Nubo sjálfur virðist kominn lengra í ferlinu en íslensk yfirvöld, en í samtali við China Daily segir hann að ef málið fái jákvæða umfjöllun á ríkisstjórnarfundinum í dag, verði samningurinn að veruleika. Þar talar Nubo einnig um að hann vonist til að leigusamningurinn verði til 99 ára, en íslensk yfirvöld hafa alltaf talað um 40 ára samning. Þá segir Nubo við China Daily að hann telji að ólíklegt sé að honum verði meinað um að leigja landið, því innanríkisráðherra hafi ekki lengur með málið að gera. Oddný ítrekar að í morgun fór aðeins fram kynning á niðurstöðum nefndarinnar. „Það sem mér fannst vera mikilvægt er að kynna ríkisstjórninni niðurstöður nefndarinnar, þetta er aðeins það skref, það voru engar samþykktir gerðar," segir Oddný, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í hádegisfréttum okkar að hann hefði enn miklar efasemdir og hefði óskað eftir frekari upplýsingum.Oddný, talað hefur verið um að sú leið sem hér er farin, að leigja Nubo landið í stað þess að selja honum það, megi kalla bakdyraleið. Ertu sammála því? „Nei, ég er alls ekki sammála því vegna þess að sú leið sem hér er farin, í gegn um lögin um ívilnanir, og fjárfestingasamninga, það er leiðin sem að stjórnvöld marka," svarar Oddný.Sjá lög frá 2010 um ívilnanir vegna nýfjárfestinga. Sjá viðtalið við Huang Nubo í China Daily
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira