Fangelsin í Prag engin paradís 13. nóvember 2012 06:00 Efnin voru vandlega falin á milli laga í töskuefninu sjálfu. Stúlkurnar bera því við að bandarískur maður hafi fengið þær til verksins. „
Ég veit bara um einn Íslending sem hefur setið inni hérna í Prag, í öðruvísi fangelsi. Hann sagði að þetta væri engin paradís," segir Þórir Gunnarsson, ræðismaður Íslands í Tékklandi, um aðbúnað í þarlendum fangelsum. Tvær átján ára íslenskar stúlkur sitja nú í gæsluvarðhaldi í Prag eftir að kókaín í kílóavís fannst í farangri þeirra við komuna þangað í síðustu viku. Til stóð að Þórir fengi að hitta stúlkurnar í gær en það gekk ekki eftir. „Yfirlögregluþjónninn sem sér um málið vill ekki að neinn tali við þær á meðan það liggur ekki fyrir nákvæmlega hvaða efni þetta var og hversu mikið magn," segir Þórir. Fyrstu fréttir hermdu að í töskunum hefðu verið átta kíló, en það mun samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins vera orðum aukið. Líklega séu kílóin ekki nema um þrjú. Lögreglunni í Prag þykir ljóst að smyglið hafi verið þaulskipulagt af vönum glæpamönnum. Það megi meðal annars sjá á því hversu rækilega efnin voru falin í töskunum. Stúlkurnar voru úrskurðaðar í sjö mánaða gæsluvarðhald en gætu sloppið út eftir þrjá ef þær eru samvinnuþýðar. Þórir segir stundum koma fyrir að Íslendingar þurfi að gista fangaklefa í eina nótt eða tvær í Prag. Maðurinn sem hann hafi hitt í vor hafi setið inni í rúman mánuð, en enginn hafi verið eins lengi og stúlkurnar horfa nú fram á. „Þetta er bara ömurlegur staður. Alls staðar er vont að vera í fangelsi en þetta eru engin Norðurlönd. Þú ferð ekkert í skóla eða líkamsrækt," segir ræðismaðurinn. - sh
Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira