Skortur á lagaheimildum - undirheimaforingjar ganga lausir Þorbjörn Þórðarson. skrifar 3. ágúst 2012 19:45
Lögreglan getur ekki aðhafst gegn nokkrum stórum undirheimaforingjum vegna skorts á lagaheimildum en mennirnir eru allir taldir stýra umfangsmikilli skipulagðri glæpastarfsemi. Lögreglan telur sig geta beitt sér með forvirkum rannsóknarheimildum, eins og eftirliti og hlerunum án þess að til staðar sé grunur um afbrot. Árið 2011 var gott ár fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Hún sló í gegn á Facebook, fékk þrjár tilnefningar til Nýsköpunarverðlaunanna og traust til hennar mældist meira en nokkru sinni eða 83 prósent, en þessar upplýsingar koma fram í ársskýrslu embættisins, sem kom út í vikunni. Lögreglan stendur samt frammi fyrir mörgum erfiðum áskorunum. Lögreglunni hefur gengið vel að leysa upp erlend glæpagengi. Meðal annars voru tvö pólsk gengi leyst upp í fyrra. Það sem gengið hefur erfiðar er að hafa hendur hári innlendra höfuðpaura sem grunaðir eru um að stýra umfangsmiklum og skipulögðum fíkniefnaviðskiptum. Eitt dæmi sem nefnt hefur verið í samtölum við lögreglumenn er nafngreindur maður sem á fjölmargar fasteignir á höfuðborgarsvæðinu þar sem menn hafa verið gripnir við ræktun kannabiss en alltaf er gefin sama skýringin. Að ræktunin hafi verið hjá leigutaka viðkomandi húsnæðis, án vitundar eigandans. Leigusalarnir styðja slíka frásögn, oft á grundvelli samkomulags sem þegar hefur verið gert. Þessi einstaklingur er talinn einn umsvifamesti maðurinn í undirheimum Reykjavíkur þegar skipulögð glæpastarfsemi er annars vegar, en hann hefur aldrei verið ákærður eða hlotið dóm. Þessir menn eru því stikkfrí í undirheimum. Ekkert festist á þá og lögreglan getur ekkert aðhafst því hún getur ekki rannsakað brot nema hafa grun um refsiverða háttsemi eða kæru. Lögreglan hefur bent á að ef hún hefði forvirkar rannsóknarheimildir, til dæmis heimildir til að fylgjast með meintum höfuðpaurum án vitundar þeirra, gæti hún haft hendur í hári þeirra og komið fyrr í veg fyrir afbrot. Lögregluembætti í nágrannalöndum hafa svipaðar heimildir en stjórnvöld hafa ekki svarað ítrekuðu kalli eftir auknum heimildum.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Innlent Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Fleiri fréttir Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Sjá meira