Tillaga Sivjar um forvirkar rannsóknarheimildar verður lögð fram á ný Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. ágúst 2012 20:30
Frumvarp innanríkisráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir dagaði uppi í þinginu en allir umsagnaraðilar lögðust gegn því, þar með talin lögreglan sjálf sem sagði frumvarpið í engu bæta við gildandi heimildir. Tillaga Sivjar Friðleifsdóttur um sama mál þótti betri en var ekki samþykkt vegna málþófs. Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis ákvað í júní sl. að hætta við frumvarp Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir þar sem umsagnir sem bárust um það voru nær allar neikvæðar. Til dæmis sagði Lögmannafélagið orðrétt að það væri mat Laganefndar Lögmannafélagsins „að frumvarpið vinni í raun gegn tilgangi sínum." Meirihluti nefndarinnar ákvað frekar að styðja þingsályktunartillögu Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns um sama efni. Það sem þykir kannski vandræðalegt fyrir ráðherrann er að frumvarp hans þótti að mati allra umsagnaraðila og þar er lögreglan sjálf meðtalin, ekki hafa í för með sér neinar nýjar lagaheimildir sem komið gætu að gagni. Þá var frumvarpið talið gefa tilefni til að álykta að um afturför væri að ræða frá núverandi réttarástandi. Tillaga Sivjar var samþykkt í allsherjar- og menntamálanefnd en hún gengur út á að ráðherra eigi að lögfesta svipaðar heimildir og á Norðurlöndunum þegar forvirkar rannsóknarheimildir eru annars vegar. Þingsályktunartillagan fór hins vegar aldrei í gegn vegna málþófs í þinginu og tímaskorts. Siv sagði í samtali við fréttastofu að hún myndi endurflytja tillöguna á næsta þingi og vonast til þess að hún yrði samþykkt hið fyrsta.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira