Hefði viljað meiri stuðning 11. nóvember 2012 13:18 Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson fékk tæplega 54 prósent greiddra atkvæða í fyrsta sætið í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi. Hann segist hafa verið að vonast eftir meira afgerandi stuðningi. Bjarni Benediktsson fékk 8 prósentustigum meira í oddvitasætið í prófkjöri í Kraganum fyrir kosningarnar 2009 en þá fékk hann 62 prósent en 53,8 prósent núna. Þetta er einn lakasti árangur sem formaður hefur fengið í prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokknum en fyrir 33 árum fékk Geir Hallgrímsson, þáverandi formaður flokksins, ekki nema 37,5 prósent atkvæða í oddvitasætið í Reykjavík, án þess að það hefði neinar afleiðingar fyrir hann. Bjarni segist hafa búist við meiri stuðningi. „Ég neita því ekki að ég hefði gjarnan vilja sjá meiri stuðning, en þetta var afgerandi niðurstaða," sagði Bjarni. Hann segir niðurstöðuna ekki breyta neinu varðandi sína stöðu, honum finnst mestu máli skipta að Sjálfstæðisflokkurinn sé að bjóða upp á sterkan lista. Hann segir að það hafi einnig verið sótt hart að honum, en hann fékk tvö mótframboð. Ragnheiður Ríkharðsdóttir lenti í öðru sæti í prófkjörinu í gær með 2153 atkvæði í annað til þriðja sæti og Jón Gunnarsson þingmaður hafnaði í þriðja sæti með 2267 atkvæði. Stóru tíðindin eru ef til vill góður árangur Vilhjálms Bjarnasonar háskólakennara og formanns félags fjárfesta en hann hlaut 2378 atkvæði í 1.-4. sæti og hafnaði fjórða sæti. Elín Hirst hafnaði í 5. sæti og Óli Björn Kárason í því sjötta. Miðað við skoðanakannanir ættu fimm efstu sætin að vera örugg þingsæti.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira