Með eljusemi má útrýma kynbundnum launamun BBI skrifar 10. október 2012 18:19 Mötuneyti. Mynd úr safni. Mynd/Stefán Karlsson
Kyndbundinn launamunur er hvorki til staðar í Reykjanesbæ né á Akureyri. Bæði sveitarfélögin birtu upplýsingar um þetta á heimasíðum sínum í dag en fyrr í vikunni kom hins vegar fram að rúmlega 13% óútskýrður kynbundinn launamunur hjá starfsmönnum BSRB mælist á landinu. Allherjarkönnun sem unnin var árið 2007 en kynnt í bæjarráði Akureyrar í gær leiðir í ljós að ekki er marktækur kynbundinn munur á launum karla og kvenna í bæjarfélaginu, hvorki þegar um er að ræða dagvinnulaun né heildarlaun. Árið 1998 var svipuð könnun gerð sem benti til að kynbundinn launamunur væri 6-8% í bæjarfélaginu. Eftir það var ráðist í gagngera endurskoðun á launakerfi Akureyrarbæjar og unnið markvisst að því að jafna laun kynjanna. Mikil vinna og erfiðar ákvarðanir leiddu til þeirrar niðurstöðu sem nýja könnunin sýnir. „Það virðist því ljóst að með góðum vilja, mikilli vinnu og eljusemi er hægt að eyða kynbundnum launamun," segir á heimasíðu Akureyrarbæjar. Sömu sögu er að segja úr Reykjanesbæ. Þar hefur markvisst verið unnið að því að útrýma kynbundnum launamun samkvæmt upplýsingum frá starfsþróunarstjóra. Fyrir vikið er „hlutfall karla og kvenna í æðstu stjórnunarstöðum jafnt" og kynbundinn launamunur fyrirfinnst ekki „hvort sem er í grunnskólum, leikskólum, íþróttahúsum, félagsþjónustu eða annars staðar".
Tengdar fréttir Launamunur kynjanna 13% á landsvísu Kynbundinn launamunur félagsmanna BSRB er rúmlega þrettán prósent á landsvísu. Könnun leiddi í ljós að meðal fólks í hundrað prósent starf eru konur að jafnaði með tuttugu og sex prósent lægri uppreiknuð heildarlaun en karlar. 7. október 2012 14:59 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Sjá meira
Launamunur kynjanna 13% á landsvísu Kynbundinn launamunur félagsmanna BSRB er rúmlega þrettán prósent á landsvísu. Könnun leiddi í ljós að meðal fólks í hundrað prósent starf eru konur að jafnaði með tuttugu og sex prósent lægri uppreiknuð heildarlaun en karlar. 7. október 2012 14:59