Með nokkur kíló af amfetamíni í sjampóbrúsum Boði Logason skrifar 10. október 2012 19:13
Þrír pólverjar voru dæmdir í þriggja ára fangelsi í morgun fyrir innflutning á tæplega níu kílóum af amfetamíni til landsins. Verjandi segir mennina geta vel við unað enda hafi saksóknari farið fram á sex til sjö ára fangelsi. Það var í apríl síðastliðnum sem mennirnir komu hingað til lands með flugi frá Varsjá í Póllandi. Fíkniefnahundur tollgæslunnar merkti fíkniefni á einum mannanna og við nánari skoðun reyndust tvö og hálf kíló af amfetamíni vera falið í sjampóbrúsum í töskunni. Hinir tveir höfðu farið óáreittir framhjá tollvörðum en eftir að sá fyrsti var tekinn vaknaði grunur að þeir væru einnig með fíkniefni í fórum sínum. Þeir voru stöðvaðir í leigubíl í Kópavogi stuttu síðar og reyndist sá grunur á rökum reistur - svipað magn af amfetamíni var falið í sjampóbrúsum í töskum þeirra. Mennirnir játuðu að hafa flutt fíkniefnin til landsins en þeir hafi ekki vitað hver af öðrum og ferðin til Íslands hafi verið skipulögð af ónafngreindum mönnum. Dómari í málinu féllst á þessi rök og sagði að ekkert í málinu benti til þess að um samverknað hafi verið að ræða.Eruð þið sáttir við þessa niðurstöðu? „Já ég held það. Þetta mál snérist um það hvort þeir yrðu dæmdir fyrir að flytja þessi fíkniefni í einu lagi, eða hver í sínu lagi. Það gríðarlegur munur á refsingu eftir því hvor niðurstaðan verður ofan á. Hér eru þeir dæmdir fyrir að smygla þessu í sitthvoru lagi. Sem er rétt niðurstaða að ég tel, og var okkar vörn í málinu. Þannig ég held að við getum vel við unað," segir Haukur Örn Birgisson, verjandi sakbornings. Í framburði lögreglumanns, sem handtók tvímenningana í Kópavogi, fyrir dómi kom fram að talið sé að fjórði maðurinn hafi komið með þeim til landsins með sama flugi. Hann hafi tekið leigubíl á undan þeim á sama stað í Breiðholti og hinir tveir voru á leiðinni á. Hann var hinsvegar ekki handtekinn og má því gera ráð fyrir að hann hafi náð að skila um þremur kílóum af amfetamíni, sem fóru í umferð hér á landi, af sér áður en hann hélt af landi brott.
Tengdar fréttir Ánægðir með niðurstöðuna - hámarksrefsing 12 ár Þrír pólskir karlmenn voru í morgun dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á amfetamíni hingað til lands. Fíkniefnin voru falin í sjampóbrúsum en það var fíkniefnahundurinn Nelson sem kom upp um smyglið. 10. október 2012 11:12 Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Fleiri fréttir Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Sjá meira
Ánægðir með niðurstöðuna - hámarksrefsing 12 ár Þrír pólskir karlmenn voru í morgun dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á amfetamíni hingað til lands. Fíkniefnin voru falin í sjampóbrúsum en það var fíkniefnahundurinn Nelson sem kom upp um smyglið. 10. október 2012 11:12