Ánægðir með niðurstöðuna - hámarksrefsing 12 ár 10. október 2012 11:12 Mennirnir mættu allir í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. mynd/BL
Þrír pólskir karlmenn voru í morgun dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á amfetamíni hingað til lands. Fíkniefnin voru falin í sjampóbrúsum en það var fíkniefnahundurinn Nelson sem kom upp um smyglið. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á tíunda tímanum í morgun og voru mennirnir þrír, sem sæta gæsluvarðhaldi á Litla Hrauni, viðstaddir dómsuppsöguna. Málið hófst í apríl á þessu ári þegar þeir komu með flugi hingað til lands frá Varsjá í Póllandi. Það var fíkniefnahundurinn Nelson sem merkti fíkniefni á einum mannanna þegar hann gekk fram hjá tollvörðum. Við aðalmeðferð málsins bar tollvörður vitni, en hann lýsti því þegar hann vigtaði sjampóbrúsann þá reyndist hann vera um eitt kíló að þyngd en samkvæmt innihaldslýsingu átti hann að vera 750 grömm. Það þótti grunsamlegt og við nánari skoðun reyndist amfetamín vera falið í nokkrum sjampó-brúsum.Tveir sluppu framhjá tollvörðum Þegar þarna var komið við sögu þá kom annar tollvörður á leitarsvæði tollvarða á Keflavíkurflugvelli. Hann grunaði að ekki væri allt með felldu því stuttu áður hafði hann skoðað í tösku annars manns, sem var með sama innihald og taskan með afmetamíninu. Sama tegund af nærbuxum, biblía og mjög svipað pakkað ofan í töskurnar. Því var gerð leit að manninum fyrir utan flugstöðina en sá reyndist á leið til Reykjavíkur með leigubíl, ásamt öðrum manni. Þegar þarna var komið við sögu voru þrír menn grunaðir um smygl á fíkniefnum til landsins. Þegar leigubíllinn var stöðvaður af lögreglu í Kópavogi reyndist sá grunur á rökum reistur, því í farangri mannanna tveggja fundust eins sjampóbrúsar og reyndist svipað magn af amfetamíni vera í þeim.Vissu ekki hver af öðrum Við aðalmeðferð málsins sögðust mennirnir vera burðardýr og að ferðin til Íslands hafi verið skipulögð af ónafngreindum mönnum í Póllandi. Þeir hafi ekki vitað hver af öðrum. Niðurstaða dómara var þriggja ára fangelsi, auk þess sem mönnum er gert að greiða verjandum sínum málsvarnarlaun og um eina milljón í sakarkostnað. Þá dregst gæsluvarðhaldið, sem mennirnir hafa setið í frá því í apríl, frá dómnum. Saksóknari í málinu fór fram á sex til sjö ára fangelsi yfir mönnunum, en hámarskrefsing fyrir brot af þessu tagi er tólf ár. Að sögn verjanda eins af mönnunum eru þeir ánægðir með niðurstöðuna í málinu.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira