Viðskipti innlent

Breska lögreglan hættir rannsókn á starfsemi Kaupþings

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson.
Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson.
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, tilkynnti í morgun að embættið væri hætt rannsókn á atburðarrásinni sem leiddi til hrun Kaupþings. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stofnunin sendi fjölmiðlum í dag. Ástæðan er sögð vera sú að ekki eru taldar nægar sannanir fyrir því að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. Í tilkynningunni kemur fram að efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar og Sérstakur saksóknari á Íslandi muni áfram hafa með sér gott samstarf.

Rannsókn SFO laut einkum að gríðarlega háum lánveitingum bankans til bræðranna Robert og Vincent Tchenguiz, fáeinum dögum fyrir fall bankanna. Báðir neituðu bræðurnir að hafa gerst brotlegir við lög. Íslendingarnir sem handteknir voru vegna málsins, þeirra á meðal Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson stjórnarformaður og Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupþings Singer & Friedlander, og Guðni Níels Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri hjá bankanum, neituðu einnig sök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×