Innlent

Nafn mannsins sem lést í Reykjanesbæ

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umfangsmikil lögreglurannsókn fór fram í Reykjanesbæ eftir að líkið fannst.
Umfangsmikil lögreglurannsókn fór fram í Reykjanesbæ eftir að líkið fannst. Mynd/ Hilmar Bragi.
Ættingjum mannsins sem fannst látinn í fjörunni neðan við Ægisgötu í Reykjanesbæ að morgni föstudagsins síðastliðins hefur verið tilkynnt um andlát hans. Maðurinn var pólskur, 42 ára gamall og hét Jaroslaw Olejniczko. Hann var búsettur í Reykjanesbæ. Hann lætur eftir sig uppkominn son og aldraða móður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×