Viðskipti innlent

Ballið byrjað að nýju, gengi krónunnar fellur

Gengi krónunnar hefur verið að veikjast töluvert undanfarna tvo daga. Þannig hefur gengið fallið um 2% miðað við 8. október þegar það var hvað sterkast í haust.

Jón Bjarki Bentsson hagfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka segir að væntanlega sé hér um hefðbundna árstíðarsveiflu að ræða.

Hann bendir á að krónan veikist verulega fram eftir septembermánuði, en rétt fyrir síðustu mánaðamót fór hún að styrkjast aftur, sem hann telur að tengist m.a. gjaldeyristekjum frá ferðamönnum og sjávarútvegi. Hvað ferðamennina varðar var september álíka góður mánuður og júní í fyrra.

Jón Bjarki segir að styrkingin entist í tvær vikur en nú erum við sem sagt komin í veikingarfasann aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×