Áslaug gefur kost á sér 4. október 2012 11:48 Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í komandi prófkjöri til Alþingiskosninga.
Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í komandi prófkjöri til Alþingiskosninga. Í tilkynningu segir: Áslaug María, hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Reykjavíkurborg frá 2006. Hún er oddviti Sjálfstæðisflokksins í velferðarráði og menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og hefur áður átt sæti í umhverfis- og samgönguráði og leikskólaráði. Áslaug stofnaði fyrirtækið Sjá viðmótsprófanir ehf. árið 2001 en fyrirtækið var það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur verið leiðandi á sviði rannsókna og úttekta á notendahegðun á vefnum. Áslaug María var kjörin í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins á landsfundi 2007 og sat þar til 2011. Hún var formaður Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna frá 2006 til 2011. Hún var kjörin formaður allsherjar- og menntamálanefndar á flokksráðfundi síðast liðið vor og er einnig stjórnarmaður í velferðarnefnd flokksins. Áslaug María er með mastersgráðu í vinnusálfræði frá University of Hertfordshire í Englandi. Hún er framkvæmdastjóri Sjá ehf. og borgarfulltrúi í Reykjavík. Áður var Áslaug deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu og sinnti þar málefnum fatlaðra og félagsþjónustu sveitarfélaga. Áslaug María Friðriksdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Sambýlismaður Áslaugar er Hjálmar Edwardsson og eiga þau tvo drengi en Áslaug á jafnframt eina dóttur. Foreldrar Áslaugar Maríu eru Friðrik Sophusson, fyrrverandi forstjóri, ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Helga Jóakimsdóttir, hárgreiðslumeistari og alexandertæknikennari.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Sjá meira