Lögreglan á Suðurnesjum: Eitthvað sem við erum ekki vön 4. október 2012 14:10 Myndin er úr safni. "
Þetta er eitthvað sem við erum ekki vön," svarar Jóhannes Jensson, yfirmaður rannsóknardeildar hjá lögreglunni á Suðurnesjum, spurður út í hrollvekjandi atburð sem átti sér stað í Reykjanesbæ síðastliðinn föstudag, þegar einstaklingur tók sofandi barn úr í barnavagni fyrir utan íbúðarhús í bænum og lagði það skammt frá. Það er óhætt að segja að íbúar í Reykjanesbæ séu slegnir yfir atburðinum, enda hefur hingað til þótt óhætt að skilja börn eftir í barnavagni fyrir utan hús eins og tíðkast víðar. Atvikið átti sér stað á milli eitt og tvö á föstudaginn síðasta en þegar huga átti að barninu kom í ljós að það var ekki í vagninum. Eftir skamma stund heyrðist í barninu þar sem það lá í húsagarði við næsta hús, en á milli húsanna er tæplega meters há girðing. Ekkert amar að barninu. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið af kappi en gefur lítið upp um rannsóknina. Allt kapp er þó lagt á að finna þann seka. Þess má geta að lögreglan hvetur foreldra til þess að gæta sérstaklega vel að börnum sínum þegar þau sofa úti í barnavagni.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira