Vonar að um barnaskap hafi verið að ræða 4. október 2012 23:29 „
Við skulum nú vona að þarna sé um barnaskap að ræða, að þarna hafi komið krakkar og farið í vagninn og gert þetta í fyllsta sakleysi," segir Herdís Storgaard, sérfræðingur í öryggi barna, um það mál þegar barnavagn, með fjórtán mánaða gömlu barni var fjarlægt frá heimili sínu og skilið eftir í nágrannagarði. Vísir greindi frá málinu í dag. Herdís tók fram í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að hún þekkti ekki umrætt mál til að tjá sig neitt nánar um það. Hins vegar sagði hún almennt að það þyrfti alltaf að gæta barna í barnavögnum. „Því það getur ýmislegt gerst, vagnar geta fokið á hliðina, krakkar hafa verið að kíkja á vagna, velt þeim um koll og ekki látið vita. Og það eru náttúrulega dýr sem ganga um laus, svo sem kettir," segir Herdís. Hún segir að það sé algengt á Norðurlöndum að börn séu látin sofa úti. Þar sé mikið gert af því að börn sofi úti. „Það eru deildar meiningar um ágæti þessa," segir hún. Herdís segir þó að börnin sofi mjög vel úti í köldu lofti. „Líkamsstarfsemin hægir á sér og líkaminn fer í dýpri svefn," segir hún. Það sé ástæðan fyrir því að börnin séu látin sofa utandyra.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Sjá meira