Stálu skotvopnum og veltu bíl 5. október 2012 16:23 Það var sérsveitin sem aðstoðaði heimamenn við handtökuna.
Lögreglan á Sauðárkróki handtók þrjá einstaklinga í hádeginu þar sem þeir biðu eftir strætó. Fólkið hafði um nóttina stolið skotvopnum, tveimur rifflum og tveimur haglabyssum auk skotfæra, úr aðstöðuskúr Skotfélagsins Ósmanns sem er nokkuð fyrir utan bæinn. Einstaklingarnir, sem eru stúlka og piltur á tvítugsaldrinum og svo karlmaður á þrítugsaldri, stálu bíl fyrr um nóttina sem þau notuðu til þess að keyra að skotsvæðinu. Þar brutust þau inn og hirtu skotvopnin og töluvert magn af skotfærum. Samkvæmt Stefáni Vagni Stefánssyni, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, fór ekki betur en svo að þau veltu bílnum á leiðinni til baka, eða um fjóra kílómetra frá Sauðárkróki. Þurftu þau því að ganga til bæjarins vopnuð rifflunum og skotfærum, en þau þurftu að skilja töluvert magn af skotfærum eftir í bílnum. Lögregluna grunaði strax hverjir væru á ferð, en eftir þeim var tekið fyrir um tveimur dögum síðan þegar þau höfðu í hótunum við bæjarbúa. Þá virðast þau hafa brotist inn í sundlaug í gærkvöldi. Það var svo í hádeginu í dag sem lögreglan á Sauðárkróki, ásamt sérsveit ríkslögreglustjóra, sem var grá fyrir járnum, handtóku þremenningana þar sem þau biðu eftir strætó. Talið er líklegt að þau hafi þá ætlað að fara suður til Reykjavíkur og reyna að koma vopnunum í verð. „Það sem stendur upp úr er að okkur tókst að endurheimta vopnin," segir Stefán Vagn en líklega hefði ekki spurst aftur til vopnanna hefði fólkið komist með þau til Reykjavíkur. Þannig kom lögreglan í veg fyrir að vopnin enduðu í höndunum á glæpamönnum.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira