Ólafur Ólafs: Skjalaflóð en ekkert í málinu - greinargerðin í heild Magnús Halldórsson skrifar 9. október 2012 15:29 Ólafur Ólafsson.
Ólafur Ólafsson, sem átti tæplega tíu prósent hlut í Kaupþingi þegar bankinn féll í október 2008, segir Al-Thani málið svokallaða, þar sem hann er meðal ákærðu, vera á sandi byggt og ákæran í málinu eigi ekki við rök að styðjast. Þrátt fyrir mikið „skjalaflóð" að hálfu ákæruvaldsins þá sé séu ákæruatriðin órökstudd og ekki studd staðreyndum, að því er segir í greinargerðinni. Þetta kemu fram í greinargerð Ólafs í málinu, sem fylgir hér meðfylgjandi.Ákæran í málinu byggir á því að ákærðu, sem eru auk Ólafs þeir Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, hafi beitt blekkingum og staðið að markaðsmisnotkun, í tengslum við kaup Sjeiks Mohammed Al-Thani frá Katar á fimm prósenta hlut í Kaupþingi, í september 2008, fyrir um 25 milljarða. Kaupþing fjármagnði kaupin að stórum hluta sjálfur með lánveitingum, en Ólafur er ákærður fyrir hlutdeild í meintum markaðsmisnotkunarbrotum ásamt þeim Hreiðar Má og Sigurði. „Það gengur sem rauður þráður í gegnum ákæru í máli þessu að Kaupþing hafi veitt lán til eignalausra félaga og að við lánveitingarnar hafi stjórnendur bankans brotið gegn reglum sem þeim bar að fara eftir þegar ákvarðanir væru teknar um slíkar lánveitingar. Af hálfu ákærða Ólafs er þessum málatilbúnaði mótmælt sem röngum og hann vísar því algjörlega á bug að hann hafi aðhafst nokkuð í þessu sambandi sem geti talist hlutdeild í refsiverðri háttsemi," segir í greinargerð Ólafs. Fréttastofa hefur ekki fengið greingargerð embættis sérstaks sóknara í málinu afhenta, en embættið telur sig ekki hafa lagaheimild til þess að afhenda gögnin, samkvæmt svari Björns Þorvaldssonar, saksóknara í málinu, til fréttastofu. Sjá má greinargerð Ólafs í Al-Thani málinu hér meðfylgjandi.
Mest lesið Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Viðskipti innlent Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Atvinnulíf Fleiri fréttir Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Sjá meira