Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fylkir 2-2 Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 29. september 2012 13:15
Grindavík og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik sínum í Pepsí deildinni í sumar. Afmælisbarnið Hafþór Ægir Vilhjálmsson jafnaði metin fyrir Grindavík á 97. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Leikurinn bar sem merki að hann skipti engu fyrir liðin. Bæði lið virkuðu afslöppuð og þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður var leikurinn fínasta skemmtun með mörgum færum. Fyrri hálfleikur var markalaus en bæði lið fengu góð færi til að skora og voru markverðir liðanna í fínu formi. Kristján Finnbogason var í marki Fylkis vegna meiðsla Bjarna Þórðar Halldórssonar og lék líklega sinn síðasta leik á ferlinum. Það vantaði ekkert upp á fjörið í seinni hálfleik. Fjögur mörk voru skoruð og mýmörg önnur færi litu dagsins ljós. Fylkismenn fengu öllu fleiri færi og þá ekki síst eftir að Grindavík missti Óskar Pétursson meiddan af leikvelli þegar enn átti eftir að leika hátt í 20 mínútur með viðbótartíma. Grindavík skoraði fyrst en það forskot lifði aðeins í sjö mínútur. Þegar 82. mínútur voru liðnar komst Fylkir yfir og sótti liðið ákaft í leit að þriðja markinu. Það kom ekki og Hafþór Ægir jafnaði metin beint úr aukaspyrnu. Vindurinn hafði töluverð áhrif á skotið og það fipaði Kristján í marki Fylkis sem þurfti að horfa á eftir boltanum leka í netið. Grindavík var fallið fyrir leikinn og lauk leik með 12 stig í 22 leikjum, lang neðst í deildinni. Fylkir hafnaði í sjöunda sæti með 31 stig og mega vel við una. Kristján: Þetta var afmælisgjöfin hans Habbó„Það er alltaf gaman að spila en það er fúlt að Bjarni Þórður skuli ekki hafa verið klár og tekið 22 leiki eins og hann stefndi að. Alltaf gaman að spila þó aðstæður hafi verið mjög erfiðar hér í dag," sagði Kristján Finnbogason markvörður Fylkis í dag. „Ég vonaðist eftir því að þurfa ekki að spila neitt í sumar en þetta var 2 og hálfur leikur sem ég þurfti að taka en Bjarni var í góðu standi fram eftir öllu sumri," sagði Kristján sem lauk ferlinum á heldur leiðinlegan hátt. „Ég ætla ekki að svekkja mig á þessu marki. Þetta var of laust hjá Habbó, ég var mættur of snemma og vindurinn tók boltann of mikið. Svona er þetta. Þetta var afmælisgjöfin hans," sagði Kristján léttur að lokum. Guðjón: Ætla að endurskipuleggja þetta„Það gladdi mig að sjá okkur skora úr síðustu spyrnu sumarsins en við fengum betri færi sem við áttum að nýta. Það var ekki sanngjarnt að lenda undir. Það var sérstaklega erfitt að horfa upp á fyrsta markið. Við töldum það vera leikbrot þegar markmaðurinn meiddist en það var ekki dæmt. Það var ágætt að sjá að það var vilji til að komast inn í leikinn aftur þó það hafi verið leiðinlegt fyrir Stjána að fá mark á sig með þessum hætti,“ sagði Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur. „Við byrjum að æfa á ný í byrjun nóvember. Það eru ákveðnir óvissuþættir með leikmannaskipan. Það þarf að sjá til á hvaða hátt það endar. „Ég er með samning til 2014 og hef fullan hug á að endurskipuleggja þetta og koma þessu í gang. Koma liðinu upp aftur og búa til breiðari kjarna sem er skipaður meira af Íslendingum. Undanfarin ár hefur verið allt of mikið gegnumstreymi af leikmönnum og það þarft að stoppa það. Við eigum ákveðinn kjarna hér heima nú þegar sem hægt er að byggja á og reyna að draga til okkar íslenska leikmenn sem eru með lengri plön heldur en skammtímalausnirnar sem útlendingarnir hafa boðið upp á,“ sagði Guðjón að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Breiðablik - Víkingur | Heimakonur skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Sjá meira