Viðskipti innlent

Afkoma Hafnarfjarðarbæjar jákvæð fyrir fjármagnsliði

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður.
Meginniðurstaða árshlutareikningsins Hafnarfjarðarbæjar, sem var lagt fyrir bæjarráð í síðustu viku, er að afkoma bæjarsjóðs A hluta og samstæðureiknings A og B hluta er jákvæð fyrir fjármagnsliði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.

Rekstrarniðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði er jákvæð um tæpar 751 millj.kr. sem er um 10% af tekjum tímabilsins og rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 1.156 millj.kr. eða um 14% af tekjum tímabilsins.

Fjármagnsliðir hafa neikvæð áhrif á heildarniðurstöðu reikningsins vegna óhagstæðrar verðlagsþróunar á tímabilinu sem var mun meiri en gert var ráð fyrir. Rekstrarafkoma A hluta eftir fjármagnsliði er neikvæð um 198 millj.kr. og rekstrarafkoma A og B neikvæð um 137 millj.kr.

Bæði rekstrartekjur og rekstrargjöld eru í takt við áætlun ársins 2012 en frávik eru í fjármagnsliðum sem skýrast af áföllnum verðbótum á tímabilinu en þær eru jafn háar þeim verðbótum sem áætlað var fyrir allt árið 2012.

Veltufé frá rekstri í A hluta er um 551 millj.kr. og í A og B hluta nemur veltufé frá rekstri um 912 millj.kr. Heildareignir A hluta námu í júnílok 35.810 millj.kr., skuldir og skuldbindingar námu 30.956 millj.kr. og eigið fé nam 4.583 millj.kr.

Heildareignir A og B hluta námu í árslok 46.710 millj.kr. Skuldir og skuldbindingar námu 38.884 millj.kr. Eigið fé í júnílok nam 7.826 millj.kr. Á tímabilinu námu tekjur vegna gatnagerðargjalda 65,7 millj.kr. og fjárfestingar um 21.6 millj.kr. Tekin voru ný lán að fjárhæð 410 millj.kr. en greiddar afborganir á tímabilinu námu 725 millj.kr.

Hér á vef bæjarins má finna árshlutareikninginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×