Íslensk kvikmyndagerð hefur verið áberandi á RIFF síðustu ár og erlendir blaðamenn sem sækja hátíðina sýna henni vaxandi áhuga. Það er því vel við hæfi að úrval íslenskra stuttmynda sé jafn öflugt og raun ber vitni.
Hér má sjá sýnishorn úr Subculture eftir Elfar Aðalsteins:
Subculture Trailer from Berserk Films on Vimeo.
Meðal annarra stuttmynda á RIFF má nefna Afhjúpunina eftir tónlistarmanninn Richard Scobie. Einnig fyrstu mynd sjónvarpsmannsins Nilla, Níels Thibaud Girerd, sem heitir Villa (Error). Margir bíða spenntir eftir að sjá þá mynd en Ísland í dag kíkti bak við tjöldin á tökum myndarinnar í vor. Hægt er að skoða þáttinn hér á sjónvarpssíðu Vísis.
Leikstjórinn Ása Hjörleifsdóttir mætir til leiks með myndina Ástarsaga. Myndin er lokaverkefni Ásu frá Columbia háskólanum í New York. Aðalhlutverkið leikur Katherine Waterston, dóttir bandaríska leikarans Sam Waterston. Hér má sjá sýnishorn úr Ástarsögu:
Astarsaga Teaser Trailer from Ása Hjörleifsdóttir on Vimeo.
Ari Alexander Ergis Magnússon mætir með einnar mínútu mynd sem nefnist Urna og gefur tóninn fyrir mynd í fullri lengd byggða á Missi eftir Guðberg Bergsson.
Þá sýnir Erlingur Óttar Thoroddsen hrollvekjuna Child Eater þar sem ljóti kallinn í skápnum er raunverulegur en hér má sjá sýnishorn úr henni:
Child Eater Trailer from Erlingur Óttar Thoroddsen on Vimeo.
Alls bárust 45 stuttmyndir til valnefndar. Dómnefnd hátíðarinnar veitir einni mynd verðlaun úr minningarsjóði Thors Vilhjálmssonar auk Canon EOS-60D myndavélar frá Nýherja. Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn í fyrra en þá vann Skaði (Come to Harm) eftir Börk Sigþórsson.
Rúmur mánuður er þar til kvikmyndahátíðin RIFF fer fram en hún hefst 27. september og stendur til 7. október. Ítalski hryllingsmyndaleikstjórinn Dario Argento verður heiðursgestur. Sala hátíðarpössum og klippikortum er þegar hafin á heimasíðunni riff.is.
Íslenskar stuttmyndir á RIFF 2012:
Afhjúpunin (Blindsided)
Richard Scobie
Anima
Hallur Örn Árnason
Ástarsaga (Love Story)
Ása Hjörleifsdóttir
Brynhildur og Kjartan (In Sickness and in Health)
Ásthildur Kjartansdóttir
Child Eater
Erlingur Óttar Thoroddsen
Drunken Cacophony
Ellen Ragnarsdóttir og Raam Reddy
Einn á báti (Guðlaugur)
Skúli Andrésson
En dag eller to
Hlynur Pálmason
Follow the sun
Ari Allansson
Fórn (Sacrifice)
Jakob Halldórsson
Grafir og Bein (Secret and Lies)
Anton Sigurðsson
Ofbirta
Hörður Freyr Brynjarsson
Reptilicus: Initial Conditions
Guðmundur Ingi Markússon
Sailcloth
Elfar Aðalsteins
Subculture
Elfar Aðalsteins
The Pirate of Love
Sara Gunnarsdóttir
The Prophecy of the Seeress
Laurie Schapira
Urna
Ari Alexander Ergis Magnússon
Villa (Error)
Níels Thibaud Girerd
Yfir horfinn veg (Memory Lane)
Andri Freyr Ríkarðsson