Lífið

Pink með barnið í vinnunni

Pink og Willow.
Pink og Willow. myndir/cover media
Nú er eitt ár síðan söngkonan Pink, 32 ára, eignaðist sitt fyrsta barn, dótturina Willow. Mæðgurnar voru myndaðar í Los Angeles í gærdag þar sem Pink var við tökur á nýju tónlistarmyndbandi. Söngkonan leggur nú lokahönd á nýja plöt sem ber heitiðThe Truth About Love en hún kemur út 14. september. Auðvitað fékk litla stúlkan að fylgjast með mömmu í vinnunni. Eins og sjá má var Pink með bláan litaðan hártopp, gula málningu í kringum annað augað og klædd í gegnsætt dress yfir blá nærfötin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×