Fótbolti

Alfreð Finnbogason til Heerenveen

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða Helsingborgar
Framherjinn Alfreð Finnbogason hefur skrifað undir þriggja ára samning við hollenska úrvalsdeildarfélagið Heerenveen. Frá því er greint á heimasíðu félagsins.

Alfreð var samningsbundinn belgíska félaginu Lokeren en hefur verið í láni hjá sænska félaginu Helsingborg. Þar hefur hann slegið í gegn og benti allt til þess að hann myndi semja til lengri tíma við félagið. Það breyttist þó snarlega þegar Heerenveen sýndi landsliðsmanninum áhuga.

Meðal íslenskra leikmanna sem verið hafa á mála hjá Heerenveen eru Arnór Smárason, Björn Jónsson og Ingólfur Sigurðsson.

Marco Van Basten, einn besti framherji knattspyrnusögunnar, er knattspyrnustjóri hollenska liðsins.

Alfreð hittir fyrir tvo félaga úr íslenska landsliðinu í hollenska boltanum. Kolbeinn Sigþórsson sem leikur með Ajax og Jóhann Berg Guðmundsson liðsmann AZ Alkmaar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×