Íslenski boltinn

Lars Lagerbäck: Hitti Eið Smára í fyrsta skipti í gær

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lars Lagerbäck, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, kynnti í dag sinn sterkasta hóp fyrir æfingaleikinn gegn Færeyingum sem fram fer á Laugardalsvelli 15. ágúst.

„Við vorum heppnir í vor að fá æfingaleiki en venjulega fáum við ekki mikið af þeim. Ég sagði strákunum að nema þeir hefðu mjög góða ástæðu vildi ég fá þá heim í leikinn. Ég ræddi við um helming þeirra og þeir tóku allir vel í það," sagði Lagerbäck í viðtali við Hörð Magnússon á blaðamannafundi landsliðsins í dag.

Um árlegan æfingaleik þjóðanna er að ræða en undanfarin ár hefur Ísland teflt fram nokkurs konar b-liði í landsliðsleikjunum.

Grétar Rafn Steinsson og Eiður Smári Guðjohnsen, sem báðir eru án liðs, voru ekki valdir. Möguleiki er þó á að þeir komi til móts við hópinn í næstu viku.

„Ég ræddi við Grétar tvívegis og hann er mjög jákvæður en á eftir að finna sér lið. Við ákváðu að bíða þar til í næstu viku með að taka ákvörðun. Kannski tökum við þá inn í hópinn sama hvað gerist. Við eigum eftir að ákveða það," sagði Lagerbäck sem ræddi einnig við Eið Smára.

„Ég hitti Eið Smára í gær. Það var í fyrsta skipti sem ég ræddi við hann augliti til auglitis. Ég hef áður rætt við hann í síma en ég vildi vita um áform hans varðandi framtíð sína og þátttöku með landsliðinu. Hann var mjög jákvæður," sagði Lagerbäck og má skilja á honum að Eiður Smári sé nærri því að finna sér nýtt félag.

„Þú verður að spyrja hann sjálfur en mér skildist á honum að hann teldi að hann myndi finna sér nýtt félag í náinni framtíð," sagði Lagerbäck sem hefur trú á Eiði Smára.

„Ég sá leiki Íslands á síðasta ári og af þeim að dæma er hann ennþá mjög góður leikmaður. Ef hann finnur sér félag og er í formi bjóðum við hann velkominn í hópinn. Sömu reglur gilda þó um hann eins og aðra leikmenn," sagði Lagerbäck.

Sá sænski segist mjög ánægður með æfingaleikina sem íslenska liðið hefur fengið það sem af er árinu. Liðið hefur leikið fjóra leiki sem hafa þó allir tapast.

„Það var samt leiðinlegt að geta ekki spilað þá á heimavelli fyrir knattspyrnuunnendur hér á landi. Sérstaklega núna, ég er kannski ekki hlutlaus, en ég tel Ísland eiga svo marga góða unga leikmenn sem eru að koma upp."

Lagerbäck vonast til þess að Íslendingar fjölmenni á völlinn.

„Ég vona að við náum góðum leik gegn Færeyingum og margir áhorfendur mæti til að sjá Gylfa (Þór Sigurðsson), Kolbein og alla þessa ungu góðu leikmenn sem við eigum. Auðvitað hlakka ég til heimaleiks á Laugardalsvelli," segir Lagerbäck og viðurkennir að erfitt hafi verið að velja hópinn.

„Það eru góðir leikmenn utan hópsins sem getur vel verið að komist í hópinn. Það eru líka allir heilir fyrir utan Hallgrím (Jónasson) sem gæti einnig komið inn í hópinn í næstu viku," segir Lagerbäck.


Tengdar fréttir

Ingvar: Þetta var meira í framtíðardraumunum

"Ég fékk bara að heyra af þessu í gærkvöldi," sagði Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar og nú íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, valdi hann í hóp sinn fyrir vináttuleik á móti Færeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×