Fjórða Hollywoodmyndin líklegast tekin á Íslandi í haust Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. ágúst 2012 11:46 Russel Crowe er staddur hér á landi við tökur á Noah. Þessi mynd var tekin þegar hann lenti á Reykjavíkurflugvelli í júlí. mynd/ johann k. johannsson.
Miklar líkur eru á að fjórða Hollywood myndin verði tekin upp hér á landi í október. „Það eru sterkar líkur á því," segir Leifur Dagfinnsson, hjá True North, í samtali við Vísi. Hann segir þó ekkert hafa verið ákveðið endanlega. Þess vegna sé ekki tímabært að tjá sig um það um hvaða mynd er að ræða. Tökur á myndinni Noah ganga vel. „Það er mikið myndað og allur dagurinn nýttur. Þannig að ég veit ekki betur en að það sé mikil ánægja með það," segir hann. Í gærkvöldi kom Emma Watson til landsins eins og greint var frá á Vísi í morgun. Russel Crowe og Jennifer Connelly hafa verið hér í nokkrar vikur en Anthony Hopkins er ekki á landinu. Tökur fóru fram við Kleifarvatn en tökuliðið er núna farið þaðan. Leifur segist ekki geta sagt hvar tökur fari fram nákvæmlega núna. „Þau eru á Suðurlandi," segir hann. Tökur á Oblivion fóru fram hér á landi í júní og var Tom Cruise staddur hér af því tilefni. Þá fara tökur fram á mynd Bens Stiller í haust. Leifur segir að undirbúningur fyrir þær gangi vel, en greint var frá því fyrr í sumar að Stiller hefði meðal annars verið í Stykkishólmi að skoða tökustaði. Því er við þetta að bæta að Ridley Scott, leikstjóri myndarinnar Promotheus, tilkynnti í gær að gerðar yrðu tvær framhaldsmyndir. Promotheus var tekin upp hér á landi en ekkert liggur fyrir um það hvort framhaldið verði tekið hér.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira